Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Áróra L Davíðsdóttir skrifar 25. ágúst 2026 18:29 Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, Silja Sóley Birgisdóttir, Stefán Pálsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgar- og varaborgarfulltrúar minnihlutans, gagnrýna harðlega skipulagsbreytingar sem samþykktar voru á borgarráðsfundi í dag. Samsett Borgar- og varaborgarfulltrúar minnihlutans gagnrýna harðlega umfangsmiklar breytingar borgarráðs á stjórnskipulagi velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs. Þau gagnrýna meðal annars tímasetningu ákvörðunarinnar en breytingar af slíkri stærðargráðu eigi ekki að vera teknar á aukafundi.
Borgarráð samþykkti í dag skipulagsbreytingarnar á aukafundi borgarráðs en þær leiða til uppsagnar 86 starfsmanna borgarinnar, þar sem 32 munu fá boð um ný eða breytt störf en 54 munu ekki fá áframhaldandi starf. Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, Silja Sóley Birgisdóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, og Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstrisins, sammælast öll um að ýmsir annmarkar hafi verið á vinnubrögðum og tímasetningu breytinga meirihlutans í Facebook-færslum á síðum sínum. Bæði Sanna Magdalena og Silja Sóley sátu fund borgarráðs en þær eru áheyrnarfulltrúar þess. Tillaga borgarstjórnar var samþykkt með fimm atkvæðum borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn tveimur atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, segir í fundargerð borgarráðs. Í bókun Samfylkingarinnar segir að miðlæg stjórnun geti verið skynsamleg en miðlæg þjónusta sem fjarlægist fólk sé það ekki. Það séu varhugaverð vinnubrögð að samþykkja meiriháttar stefnubreytingu án þess að mat á afleiðingum liggi fyrir. „Breytingar af þessari stærðargráðu á ekki að keyra í gegnum aukafund borgarráðs á harðahlaupum til þess eins að komast hjá opinni umræðu. Ákvörðunartaka án samráðs við starfsfólk, notendur, fagráð og borgarstjórn sýnir lýðræðislegu ferli og hagsmunum borgarbúa litla virðingu,“ segir að auki í bókun borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar. Afgreiðslan fái „falleinkunn út frá lýðræðissjónarmiðum“ Vegna sumarleyfa borgarstjórnar hafi eingöngu hluti borgarfulltrúa fengið að heyra af breytingunum og tekið þátt í umræðunni um tillögurnar, segir Sanna Magdalena. Silja Sóley segir að málið hafi verið afgreitt í hraði og miklum trúnaði og að lýðræðisleg umræða um breytingarnar hafi takmarkast. „Venjulega þegar mál eru afgreidd í ágreiningi rata þau upp til borgarstjórnar en í dag var síðasti dagurinn sem borgarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild vegna sumarfrís og takmarkast þar með lýðræðisleg umræða um jafn stóra skipulagsbreytingu sem þessa,“ segir Silja. „Meirihlutinn þýtur af stað í nafni strax, strax, strax en það er gífurlega mikilvægt að stíga varlega þegar fara á af stað í stórar breytingar sem hafa áhrif á nánast allt kerfi Reykjavíkurborgar.“ Stefán Pálsson segir afgreiðsluna fá „falleinkunn út frá lýðræðissjónarmiðum“ vegna tímasetningar. „Það er hins vegar vægast sagt ekki í anda laganna að boða til skyndilegs aukafundar í borgarráði til að keyra í gegn umfangsmiklar kerfisbreytingar í lok ágúst – í því skyni að ná að klára þær áður en borgarstjórn nær að koma aftur saman. Borgarstjórn er málstofa sem fram fer fyrir opnum tjöldum og með þátttöku allra kjörinna fulltrúa, en borgarráðsfundir eru lokaðir og trúnaður ríkir um flest það sem þar er sagt,“ segir Stefán í sinni færslu. „Kallast að spara sér til tjóns“ Sanna og Silja sammælast um að niðurskurður Reykjavíkurborgar muni hafa veruleg áhrif á borgarbúa. Færri muni standa vaktina á sama tíma og álag hafi aukist, meðal annars vegna uppsagna upplýsingafulltrúa, segir Sanna. „Hér er ekki verið að bæta þjónustu heldur skera niður með þeim afleiðingum að stuðningur við íbúa minnkar sem og aðgengi íbúa að stuðningnum. Þetta kallast að spara sér til tjóns og er andstætt því sem Vinstrið stendur fyrir,“ segir Sanna. Silja Sóley spáir því að færri muni nýta þjónustu borgarinnar ef hagræðingarbreytingum Reykjavíkurborgar verður hvorki mætt með mótvægisaðgerðum né átaksverkefnum. „Eftir ár kemur eflaust greining á því að færri sæki þjónustu borgarinnar og ekki blekkjast þegar þær tölur verða túlkaðar sem svo að allt gangi í blóma því „færri þurfa á þjónustunni að halda“. Að færri sæki þjónustuna mun aðeins benda til þess að aðgengi og upplýsingagjöf um hana sé ekki nægileg,“ segir Silja „Fjöldi uppsagna stuðlar að auknu atvinnuleysi en nú þegar er búið að segja upp öllum upplýsingafulltrúum, fjölda starfsfólks á hverfismiðstöðvum og frístundamiðstöðum auk fjöldauppsagna skólaliða með útvistun ræstinga. Forsendur kjarasamninga eru brostnar og allt stefnir í hryllilegt haust,“ segir Silja. Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og varafulltrúi í borgarráði, segir sérstakt að leggja niður hverfamiðstöðvar án þess að leggja mat á áhrifin sem það kann að hafa á gæði þjónustu, viðkvæma hópa og börn svo eitthvað sé nefnt. „Niðurskurðarhnífur meirihlutans virðist ætla að beinast að velferðinni. En ekki örvænta því nú er ódýrara að byggja bílastæðakjallara!“ segir Steinunn í færslu á Facebook.
Reykjavík Vinstrið Samfylkingin Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Vinnumarkaður Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira