Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Áróra L Davíðsdóttir og Ágúst Orri Arnarson skrifa 22. ágúst 2026 08:29 Marion Tibar vann Reykjavíkurmaraþon kvenna. VÍSIR / VIKTOR Yfir fimmtán þúsund keppendur skráðu sig í hlaup Reykjavíkurmaraþonsins og hafa safnast tæpar þrjú hundruð milljónir til hinna ýmsu góðgerðarfélaga. Hér var fylgst með beinni útsendingu frá maraþoninu.
Fjórar vegalengdir voru í boði, heilt maraþon, hálft maraþon, 10 km og skemmtiskokk. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri ræsti í morgun klukkan 8:15 keppnisflokk í hálfu og heilu maraþoni. Keppnisflokkur í tíu kílómetra hlaupinu fór af stað klukkan hálf tíu og klukkan tíu var almenni flokkurinn ræstur í sömu vegalengd. Upphitun fyrir skemmtiskokkið hófst klukkan hálf tólf og var ræst út klukkan tólf. Tímataka stoppar kl 15:30. Beinni útsendingu frá keppninni er lokið en upptöku má nálgast hér fyrir neðan. Úrslit hlaupsins Michael Bidmon frá Austurríki vann Reykjavíkurmaraþon karla en hann kom í mark á tímanum 02:21:36. Arnar Pétursson veitti honum harða samkeppni en dróst aðeins aftur úr á endasprettinum og varð annar, fyrstur Íslendinga, á tímanum 02:27:02. Silviu Stoica varð þriðji. Sigurvegari Reykjavíkurmaraþonsins 2026 í karlaflokki, Michael Bidmonvísir / VIKTOR Marion Tibar frá Eistlandi vann Reykjavíkurmaraþon kvenna en hún kom í mark á tímanum 02:57:49. Sigurvegari Reykjavíkurmaraþonsins 2026 í kvennaflokki, Marion Tibar. vísir / viktor Liam Tilton frá Bandaríkjunum var fyrstur í hálfu maraþoni karla á tímanum 1:07:50. Davíð Freyr Magnússon varð annar, en fyrstur Íslendinga í mark í hálfu maraþoni karla, þremur mínútum á eftir Liam, á tímanum 1:10:50. Hörð barátta var um þriðja sætið en Atli Jasonarson kom í mark nokkrum skrefum á undan Bandaríkjamanninum Tommy Struzzieri. Ólympíufari Íslands í skíðagöngu, Dagur Benediktsson, var svo rétt á eftir þeim í fimmta sætinu en hann var sigurvegari hlaupsins á síðasta ári. Elín Edda Sigurðardóttir var fyrst í mark í hálfu maraþoni kvenna á tímanum 01:23:38 og Íslendingar áttu verðlaunapallinn því Hildur Aðalsteinsdóttir varð önnur, rúmri mínútu á eftir henni á tímanum 01:24:50. Rannveig Oddsdóttir verð þriðja á tímanum 01:25:31. Fyrrum HM-farinn Elín Edda var sigurvegari í kvennaflokki.VÍSIR / VIKTOR Baldvin Þór Magnússon var fyrstur í mark í tíu kílómetra hlaupi karla, eins og búist var við. Baldvin er einn sterkasti hlaupari landsins og eigandi Íslandsmetsins í greininni. Baldvin var nokkuð langt frá sínu besta (27:40) í erfiðum aðstæðum dagsins en kom í mark á fínum tíma, 32:13. Hann lýsti hlaupinu sem „góðri æfingu“ í viðtali eftir á. Íris Dóra Snorradóttir var fyrst í tíu kílómetra hlaupi kvenna á tímanum 37:29. Samkeppnin í því hlaupi var svakaleg. Katla Rut Robertsdóttir Kluvers kom í mark aðeins tveimur sekúndum á eftir Írisi Dóru og Sigþóra Brynja varð síðan þriðja, þrettán sekúndum á eftir Kötlu. Íris og Sigþóra eru svo báðar á leið á HM í hálfu maraþoni í næsta mánuði. Baldvin fer einnig á HM og keppir þar í 5 kílómetra hlaupi. Baráttan um verðlaunasæti í tíu kílómetrunum var rosaleg! vísir / VIKTOR Ný hlaupaleið Ný hlaupaleið var kynnt í júní og verður rásmark hlaupsins nú við Háskóla Íslands. Hlaupið hefst fyrir utan Háskóla Íslands, á Sæmundargötu. Allar vegalengdir hefjast á sama stað og enda svo á Geirsgötu. Hér má sjá hlaupaleiðar, drykkjarstöðvar og hvatningarstöðvar.Reykjavíkurmaraþon Víða eru götur lokaðar vegna maraþonsins en nánari götulokanir má sjá hér. Sjá einnig: Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons
Reykjavíkurmaraþon Hlaup Menningarnótt Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Íslenski boltinn Fleiri fréttir Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Segir nýju kappakstursbrautina í Madríd vera erfiðari en í Mónakó Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Öll pressan er á Ólafi Inga „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu ÍBV samdi við bandarískan hermann Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Dagskráin í dag: Golf, Formúla og Hollywood Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Sjá meira