Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Sigurgeir Þorkelsson skrifar 11. ágúst 2026 20:56 Margra mánaða vinna liggur að baki hjá Lögreglunni á Vestfjörðum. Búist er við miklum fjölda á Patreksfjörð, þaðan sem leið margra mun liggja vestur að Látrabjargi. Samsett Á venjulegum miðvikudegi í ágúst væru sex lögreglumenn á vakt á öllum Vestfjörðum. Sem viðbragð við almyrkvanum 12. ágúst verður lögregluþjónum á vakt fjölgað um sextán sem er nánast fjórfalt á við venjulegan dag. Umferðarstýring verður víða og verður að hámarki þrjú þúsund bílum leyft að keyra vestur að Látrabjargi.
Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, segir undirbúning hafa staðið yfir síðustu mánuði en í fréttum hefur komið fram að fjöldi ferðamanna á landinu yfir almyrkvann sé áttatíu þúsund. Fjölmargir stefna vestur á firði til að berja myrkvann augum. „Umferðin er að þyngjast,“ segir Hlynur. „En allt gengið stórslysalaust hingað til.“ Á Vestfjörðum er búist við margfaldri umferð. Frá Dýrafjarðargöngum Borgarfjarðarmegin, myndin er úr safni.Vísir/Anton Brink Mánaðaundirbúningur að baki Undirbúningur fyrir stóra daginn hefur staðið yfir síðustu mánuði á Vestfjörðum og hefur meðal annars falið í sér samráð við lögreglu, sveitarfélaga, Vegagerðarinnar og heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Undirbúningur hefur meðal annars falið í sér þolmarkagreiningu, hver sé sá hámarksfjöldi sem svæðið geti tekið við, og greiningu á því hvar þurfi að setja upp umferðarstýringu. Erfitt hefur verið fyrir yfirvöld á svæðinu hve margir muni sækja svæðið heim meðan almyrkvinn skellur á. Óvissa um fjölda ferðamanna ríkir fram á síðustu stundu því einn stærsti þátturinn er hin síhvika veðurspá. Útlit er nú fyrir að einna best verði að sjá til myrkvans á Vestfjörðum. „Nú virðist veðurspáin vera þannig að það ætti að vera ágætt veður hérna,“ segir Hlynur. Lögregla hefur allt sem í sínu valdi stendur til að greina hættur og tryggja öruggt viðbragð ef eitthvað fer úrskeiðis. Umferðarstýring fer fram á völdum stöðum. Einstefna að Látrabjargi Einstefna verður að Látrabjargi á morgun, vestasta tanga Íslands, þar sem hægt verður að kreista út nokkrar aukasekúndur af almyrkva. Erfitt hefur verið að meta hve margir munu ferðast þangað til að berja sólmyrkvann augum. Að Látrabjargi liggur Örlygshafnarvegur, malarvegur sem sjaldan heyrist hrósað fyrir ástand sitt. „Þetta er bara nauðsynlegt, að það sé ekki verið að mætast,“ segir Hlynur. Vegurinn liggur um 45 kílómetra leið vestur frá Patreksfirði og er á köflum mjór svo erfitt er fyrir bíla að mætast. Hlynur bendir einnig á að með eina akrein lokaða sé aðgengi viðbragðsaðila tryggt. Hámark þrjú þúsund bílum verður leyft að aka veginn vestur að Látrabjargi. Það er mat lögreglu að ekki sé hægt að leggja fleiri bílum en svo á áfangastað. Einnig verður lokað fyrir för hópferðabíla sem taka fleiri en tuttugu og einn farþega á veginum. Umferðartakmarkanir verða víðar Lokað verður fyrir almenna umferð upp Bolafjall en þess í stað verða farnar svokallaðar sætaferðir með rútum frá félagsheimili Bolungarvíkur og upp á fjallið. Vegagerðin mun sjá um umferðarstýringu um Vestfjarðargöng, þríarma einbreið göng, þar sem bílar þurfa venjulega að mætast í útskotum, sem tengja meðal annars Suðureyri og Flateyri við Ísafjörð. Við umferðarstýringu verður tekið mið af því í hvaða átt umferðin flæðir, að sögn Hlyns. Vetfjarðagöng bjóða ferðaglöðum upp á marga valmöguleika. Vísir/Vilhelm Aukið viðbragð um Vestfirði alla Björgunarsveitarfólk verður staðsett víða á Vestfjörðum til að auðvelda viðbragð og aðstoða við umferðarstýringu. Þá er aukinn fjöldi heilbrigðisstarfsfólks á vakt auk þess sem sjúkrabíll verður staðsettur nálægt Látrabjargi. Fyrir eru sjúkrabílar á Ísafirði, Þingeyri, Hólmavík og Patreksfirði. Fjöldi lögreglumanna á vakt verður nánast fjórfaldaður, eins og fyrr var minnst á. „Vanalega erum við sex lögreglumenn á vakt á öllum Vestfjörðum en nú ætlum við að bæta sextán lögreglumönnum við.“ Búist er við fjölmenni á Bolungarvík. Myndin er úr safni. Vísir/Anton Brink Hvatning Hlyns til fólks á ferðinni á morgun er einföld. „Við viljum hvetja ökumenn til að keyra í samræmi við lög og reglur. Ef fólk gerir það þá eru nánast engar líkur á slysum og óhöppum.“
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Lögreglumál Vesturbyggð Ísafjarðarbær Bolungarvík Umferð Umferðaröryggi Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Látrabjarg Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Sjá meira