Vesturbyggð

Vesturbyggð

Mannfjöldi: 1.314 (2025). Flatarmál: 1.512 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Patreksfjörður, Bíldudalur, Tálknafjörður.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Stjórnandi drónans taldi sér ógnað og byssu­maðurinn dæmdur

Skipverji á fiskiskipi hefur verið sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og vopnalagabrot, með því að hafa skotið þremur skotum að dróna Fiskistofu, sem notaður var við veiðieftirlit, í nóvember árið 2024. Skipverjinn var dæmdur til greiðslu 150 þúsund króna sektar.

Innlent
Fréttamynd

Við­gerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“

Enn eina ferðina hefur því að Herjólfur verði kominn í fullan rekstur á ný seinkað. Í þetta skiptið veldur framleiðsla á koparvír sem verður fluttur frá Tyrklandi til Hollands, þangað sem mótorinn er, því að viðgerð tefst. Áætlað var að viðgerðinni lyki í júní en nú er útlit fyrir að það verði um miðjan júlímánuð og er útlit fyrir að hrakföllum Herjólfs fari að linna.

Innlent
Fréttamynd

Brúin yfir Djúpa­fjörð boðin út

Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028.

Innlent
Fréttamynd

Óttast for­dæmið sem á­kvörðun ráð­herra setur um Baldur

Sveitarstjóri Stykkishólms segir tilfærslu á ferjunni Baldri til Vestmannaeyja óheppilega, fyrirvarann of stuttan og tilfærslan ekki í samræmi við samkomulag við ríkið. Sveitarfélögin á svæðinu mótmæla ákvörðun innviðaráðherra um að færa ferjuna og sérstaklega því fordæmi sem ákvörðunin kann að skapa.

Innlent
Fréttamynd

Von­brigði ef ballið er búið á Hótel Flat­ey

Hótel Flat­ey hefur verið ákveðinn mið­punktur þess lífs sem iðar í Flat­ey á Breiðafirði á sumrin. Nú eru þó blikur á lofti og óvissa um hvort hótelið verði yfir­leitt opið í sumar er lík­leg til að hafa tölu­verð áhrif á menningarástandið á þessum rómaða áfangastað.

Innlent
Fréttamynd

Bar­átta við fíkn, ís­lensk milli­stétt og æðavarp á Skjald­borg

Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, hefst í nítjánda sinn á Patreksfirði föstudaginn næstkomandi. Sérhæfing hátíðarinnar eru frumsýningar íslenskra heimildarmynda og í ár eru sýndar myndir sem fjalla meðal annars um byggð í Grímsey, baráttu við fíkn, stöðu íslenskrar millistéttar, endómetríósu og æðavarp á Austfjörðum.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Urðu eftir í Flat­ey á meðan Baldur sigldi suður

Bæjarstjóri Vesturbyggðar er ósáttur við samráðsleysi þegar tekin er ákvörðun um að sigla ferjunni Baldri til Vestmannaeyja þar sem henni er ætlað að leysa af Herjólf. Tveir starfsmenn á vegum Orkubús Vestfjarða eru strandaglópar í Flatey vegna brotthvarfs Baldurs.

Innlent
Fréttamynd

Fékk í skrúfuna skammt frá landi

Skömmu fyrir hádegi tilkynnti skipstjóri lítils fiskibáts sem var staddur utarlega í Patreksfirði, um að hann hefði fengið veiðarfæri í skrúfuna og væri því aflvana.

Innlent
Fréttamynd

„Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“

Sveitarstjórn og viðbragðsaðilar í Vesturbyggð eru nú íóða önn að undirbúa komu mikils fjölda ferðamanna í tengslum við almyrkvann í sumar. Bæjarstjóri á segir erfitt að sjá fyrir hve margir leggi leið sína vestur til að berja almyrkvann augum.

Innlent
Fréttamynd

Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar?

Lækkun verðs á raforku til húshitunar hefur lengi verið baráttumál sveitarfélaga á köldum svæðum. En af hverju hefur árangurinn ekki verið meiri? Þetta verður meginumræðuefnið á ráðstefnu Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem ber heitið „Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar? Hverju er hægt að breyta” og fer fram á morgun, miðvikudaginn 18. mars.

Skoðun