Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Lovísa Arnardóttir skrifar 12. ágúst 2026 10:21 Vettvangsstjórn björgunarsveita í Breiðavík. Aðsend Arna Margrét Arnardóttir, formaður svæðisstjórnar Landsbjargar, er í Breiðuvík þar sem búið er að koma upp vettvangsstjórn fyrir björgunarsveitir á svæðinu. Hún segir morguninn byrja vel í umferðarstýringu. Einstefna er komin á. „
Það gengur allt vel og er frekar rólegt eins og er,“ segir hún og að fyrstu verkefni dagsins snúist um umferðarstjórnun en á Vestfjörðum er hafin umferðarstýring og er einstefna á Örlygshafnarvegi (612) og Rauðasandsvegi frá klukkan átta og fram eftir degi. Lögreglan verður með eftirlit á svæðinu frá því í gær. „Við erum búin að vera að benda fólki á að það er komin einstefna,“ segir hún og að flestir hafi verið meðvitaður um það og tekið vel í það. Snemma hafi þau þó þurft að hleypa fólki gegnt einstefnu sem hafði beðið frá klukkan 6 og átti far með ferjunni Baldri. Björgunarsveitarfólk er til taks í dag og sinnir umferðarstýringu og öðrum verkefnum. Aðsend Björgunarfólk á póstum Hún segir björgunarsveitarfólk á björgunarpóstum frá botni Patreksfjarðar að Látrabjargi. „Núna er þetta að passa að fólk fari eftir einstefnunni,“ segir Arna Margrét og að hún eigi von á því að umferð þyngist síðar í dag og þau verði til taks sama hvað gerist. „Við verðum bara að sjá hvað dagurinn býður upp á, við erum til taks. Í Breiðuvík er björgunarsveitarfólk, slökkvilið, læknar og sjúkrabílar. Vonandi fer þetta allt vel og við þurfum ekki að gera neitt nema að sitja hér og bíða. Við erum til taks ef eitthvað er og vonum að við þurfum ekki að hlaupa í nein verkefni.“
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Björgunarsveitir Vesturbyggð Látrabjarg Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira