„Gjörsamlega hömruðum járnið á meðan það var heitt“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 5. ágúst 2026 21:08 Sindri Snær Magnússon var fyrirliði Keflavíkur í kvöld. mynd/Keflavík Keflavík lyfti sér upp í efri hluta deildarinnar með öflugum 3-0 sigri á KA í kvöld en Sindri Snær Magnússon, sem var fyrirliði Keflavíkur í leiknum, skoraði fyrsta mark leiksins sem breytti heldur betur gangi leiksins. „
Frábær liðssigur og það er ógeðslega gaman að vinna“ sagði Sindri Snær Magnússon eftir sigurinn í kvöld. „Það er langt síðan við spiluðum leik og það er alltaf gott að vinna eftir versló, það er erfiðast“ Keflavík endaði fyrri hálfleikinn frábærlega eftir brösótta byrjun og lagði þar grunn að öflugum sigri. „Bara í fyrri hálfleik augljóslega, við skorum þrjú mörk og mér fannst við byrja svolítið hægt en svo skorum við hérna eftir smá erfiðan kafla og svo gjörsamlega hömruðum við járnið á meðan það var heitt og litum eiginlega ekki til baka eftir það“ Sindri Snær skoraði fyrsta mark Keflavíkur í leiknum og honum fannst koma smá ró á sitt lið eftir að þeir komust yfir. „Já, klárlega, við byrjuðum smá styrt og vorum ekki alveg að ná að klukka þá en eftir það kom bara ógeðslega góður kafli og fylgdu tvö mörk eiginlega bara með stuttu millibili á eftir og það kláraði leikinn. Það var svo bara ógeðslega góð vinnsla og liðsheild hérna í seinni hálfleik“ Keflavík missti mann af velli á 62. mínútu leiksins þegar Eiður Orri Ragnarsson fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt. Það var þó ekki að sjá á liðinu að það hefði misst mann af velli. „Nei, klárlega, við fáum besta færið þegar Mudri [Marin Mudrazija] fær geðveikt færi og hann ver ógeðslega vel í markinu. Við fáum besta færið einum færri þannig að það var bara áfram og liðið hljóp og hljóp og við verðskulduðum sigurinn“ Keflavík er nú í efri hluta deildarinnar þegar stutt er fram í skiptingu. Þeir eru frekar að horfa upp fyrir sig en niður fyrir sig. „Gerir maður það ekki alltaf? Maður kíkir alltaf á hvað er stutt í næsta sæti fyrir ofan sig og við höldum því bara áfram“ „Þetta snýst bara um eitt í rauninni og það er að halda áfram að spila vel og halda áfram að safna punktum og svo skoðum við það hvað gerist seinna,“ sagði Sindri Snær Magnússon.
Keflavík ÍF Besta deild karla Fótbolti Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Handbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit Fram á toppinn og flautumark á Selfossi FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Haukur leiddi endurkomu Löwen Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Hrútarnir frá Hollywood eiga að fara alla leið Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Öll pressan er á Ólafi Inga „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu Sjá meira