Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Áróra L Davíðsdóttir skrifar 3. ágúst 2026 08:55 Tónlistarhátíðin Ein með öllu fór fram á Akureyri um helgina. Vísir/Viktor Freyr Einn var vistaður í haldi lögreglunnar á Norðulandi eystra vegna grófrar líkamsárásar í nótt og er málið til rannsóknar.
Áfram var mikill erill hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í gær enda margt um manninn á Akureyri þessa helgina þar sem tónlistarhátíðin Ein með öllu fór fram. Alls voru 86 mál skráð í kerfi lögreglu síðastliðinn sólarhring, segir í tilkynningu lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Mikill fjöldi hafi sótt sparitónleika hátíðarinnar á Akureyri. Flestir hafi skemmt sér vel og notið dagskrárinnar. Sparitónleikar hátíðarinnar Einnar með öllu fóru fram í gær á Akureyrarvelli.Vísir/Viktor Freyr Fimm hafi verið vistaðir í fangaklefa í nótt. Auk eins vegna grófrar líkamsárásar voru tveir vistaðir í haldi lögreglu vegna heimilisofbeldis og aðrir tveir vegna ölvunar og vímuástands. Engin mál séu skráð hjá lögreglu vegna fjölskylduhátíðarinnar Síldarævintýris á Siglufirði. Eitt fíkniefnamál hafi komið upp í gærkvöldi þar sem grunur hafi verið um sölu og dreifingu fíkniefna. Nokkuð magn fíkniefna hafi verið haldlagt og er málið til rannsóknar. Höfðu afskipti af börnum vegna ástands þeirra „Nokkuð var um ryskingar og ólæti sem og þurfti að aðstoða allmarga vegna ölvunar og vímuástands,“ segir í tilkynningu lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Sjö mál hafi komið upp þar sem afskipti voru höfð af börnum vegna ástands en barnavernd og foreldrar hafi í kjölfarið verið upplýst. Lögreglu hafi borist tilkynning um tvö umferðarslys, bæði vegna falls af hlaupahjóli. Báðir voru fluttir undir læknishendur en hvorugur er talinn alvarlega slasaður. Sextán umferðarlagabrot séu skráð síðastliðinn sólarhring. Fimm þeirra vegna aksturs undir áhrifum áfengis.
Akureyri Verslunarmannahelgin Lögreglumál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Myrtu fjörutíu manns í kirkju Erlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira