Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hjörvar Ólafsson skrifar 21. júlí 2026 21:04 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir lék við hvurn sinn fingur í leiknum. Vísir/Pawel Breiðablik burstaði Val með sjö mörkum gegn einu þegar liðin áttust við í 13. umferð Bestu-deildar kvenna í fótbolta á N1-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Blikar voru ekki lengi að brjóta ísinn en á fimmtu mínútu leiksins sendi Agla María Albertsdóttir langa sendingu inn fyrir vörn Vals á Hrafnhildi Ásu Halldórsdóttur sem kláraði færið af stakri prýði. Skömmu síðar skiptu þær svo um hlutverk. Þá komst Hrafnhildur Ása upp að endamörkum og sendi boltann fyrir á Öglu Maríu sem skaut boltanum í hælana á Bryndísi Eiríksdóttur og þaðan fór boltinn í netið. Hrafnhildur Ása var svo aftur á ferðinni um miðjan fyrri hálfleik en Elín Helena Karlsdóttir kom þá boltanum á hana og Hrafnhildur skoraði sitt annað mark í leiknum. Agla María Albertsdóttir kom af fimm af sex mörkum Breiðabliks í leiknum. Vísir/Vilhelm Gunnarsson Samvinna Hrafnhildur Ásu og Öglu Maríu hélt svo áfram að bera ríkulegan árangur. Eftir tæplega hálftíma leik þræddi Hrafnhildur Ása boltann á Öglu Maríu sem breytti stöðunni í 4-0 með hnitmiðuðu skoti. Martröð Vals hélt svo áfram skömmu síðar en varnarmenn Vals munu hrökkva upp með andfælum hugsandi um Öglu Maríu og Hrafnhildi Ásu að leika þær grátt. Það var eins og þráður væri á milli þeirra í leiknum en Hrafnhildur Ásu fullkomnaði þrennu sína eftir undirbuning frá Öglu Maríu um það bil tíu mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks. Hrafnhildur Ása lagði svo upp sitt þriðja mark í leiknum þegar hún kveikti á radarnum sínum og fann Öglu Maríu enn og aftur. Agla María smellti boltanum í netið með smekklegu skoti rétt utan vítateigs. Blikar hefðu hæglega getað bætt við fleiri mörkum í fyrri hálfleik en Tinna Brá Magnúsdóttir varði nokkrum sinnum vel frá leikmönnum Breiðabliks í góðum færum. Líf Joostdóttir van Bemmel og Sunna Rún Sigurðardóttir voru góðar í vinstri vængbakverðinum. Vísir/Vilhelm Það stóð ekki steinn yfir steini í varnarleik Vals og gestirnir áttu auðvelt með að spila sig í gegnum hjarta varnarinnar og skapa sér færi. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir, sem er komin aftur í herbúðir Vals eftir dvöl hjá hollenska félaginu Zwolle, klóraði í bakkann fyrir Val eftir rúmlega klukkutíma leik. Hrafnhildur Ása bætti svo fjórða marki sínu við undir lok leiksins en það var Sunna Rún Sigurðardóttir sem var arkitektinn að því marki. Hrafnhildur Ása hefur nú skorað tíu mörk í deildinni og er næst markahæst með tveimur mörkum meira en Taylor Marie Hamlett, framherji Fram. Hrafnhildur hefur svo skorað einu marki minna en Ída Marín Hermannsdóttir, leikmaður FH, sem er markahæst. Eltingaleikur Breiðabliks við FH á toppi deildarinnar heldur áfram en FH trónir á toppnum með 29 stig og Breiðablik andar í hálsmálið á Hafnarfjarðarliðinu með sín 27 stig. Valur og Víkingur eru hins vegar á botni deildarinnar með 10 stig hvort lið, tveimur stigum á eftir Þór/KA sem í sætinu fyrir ofan fallsvæðið. Þróttur og Fram eru þar fyrir ofan með 13 stig. Matthías Guðmundsson er í harðri fallbaráttu með Valsliðið. Vísir/Vilhelm Matthías: Tek fyrri hálfleikinn á mig „Þetta var þungt kvöld og frammistaðan alls ekki nógu góð sérstaklega í fyrri hálfleik. Ég tek það bara á mig hversu illa við mættum til leiks og hvernig þetta fór í fyrri hálfleiknum,“ sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, að leik loknum. „Taktískt upplegg mitt gekk engan veginn upp og þær áttu mjög auðvelt með að leysa þá pressu sem ég lagði upp með. Hæfileikarírkir leikmenn þeirra fengu of mikið pláss og tíma til þess að athafna og því fór sem fór,“ sagði Matthías enn fremur. „Við fórum yfir hlutina í hálfleik og náðum að vera nær þeim í seinni hálfleik. Leikur okkar batnaði þegar líða tók á leikinn en það er svo sem bara vera saga okkar í sumar. Það tekur okkur of langan tíma að komast í takt við leikina og það er eitthvað sem við þurfum að skoða,“ sagði hann. „Það er jákvætt að sjá Röggu skora og innkomuna hjá Emmu. Ég næ eflaust að tína einhverja fleiri jákvæða mola þegar ég horfi á leikinn aftur. Hins vegar er ljóst að við þurfum að gera mikið mun betur í næstu leikjum ef við ætlum að snúa genginu við. Það eru mikil gæði í þessum leikmannahópi og nú er það bara undir mér og leikmönnum mínum komið að sýna það inni á vellinum í lengri tíma í leikjum okkar,“ sagði Matthías um framhaldið. Ian Jeffs: Búinn að bíða eftir svona leik „,Sóknarleikurinn okkar var frábær og við tengdum saman margar sendingar sem sköpuðu fallegar sóknir. Ég er svolítið búinn að bíða eftir svona leik þar sem við höfum verið að skapa svipaðar stöður og í þessum leik án þess að ná að nýta það til fullnustu,“ sagði Ian David Jeffs, þjálfari Breiðabliks, eftir leik. „Það voru margir leikmenna að spila vel og við fengum framlag úr mörgum áttum í sóknaraðgerðum okkar. Hrafnhildur Ása og Agla María voru þær sem bundu endahnútinn en Edith, Líf, Katelyn og Þórdís Elva tóku líka virkan þátt í sóknaruppbyggingunni,“ sagði Jeffs þar að auki. „Hrafnhildur Ása hefur verið að pæla í því að það hafi hægst á markaskorun hennar undanfarið en ég hef verið að minna hana á að hún sé að koma sér í mjög góðar stöður. Að þessu sinni náði hún og fleiri leikmenn að nýta þau tækifæri sem gáfust,“ sagði hann . „Ég var líka ánægður með þá leikmen sem komu inná og héldu tempóinu upp þrátt fyrir að við höfum ekki náð að skora jafn mikið í seinni hálfleik. Þórdís Elva kom flott inn í liðið og það var eins og hún væri búin að spila með okkur í fimm ár. Það var gaman að sjá allt liðið spila í kvöld og margar góðar sóknir litu dagsins ljós,“ sagði Jeffs. Ian David Jeffs, þjálfari Breiðabliks, sá sparihliðarnar hjá leikmönnum sínum. Vísir/Vilhelm Atvik leiksins Eins og áður segir voru forréttindi að sjá Öglu Maríu og Hrafnhildi Ásu leika listir sínar og tilþrif þeirra á vellinum glöddu þau sem fylgdust með. Stjörnur og skúrkar Það var ofboðslega gaman að fylgjst með því hversu vel Agla María og Hrafnhildur Ása tengdu saman í þessum leik. Líf Joostdóttir van Bemmel var svo síógnandi í sóknarleiknum í hægri bakvarðarstöðunni. Þórdís Elva Ágústsdóttir spilaði vel inni á miðsvæðinu í sínum fyrsta leik fyrir Blika en hún kom frá Þrótti á dögunum. Erfitt er að taka einhverja út úr liði Vals eftir þetta afhroð og hrósa fyrir góða spilamennsku. Nokkuð viss um að þær vilji gleyma þessari frammistöðu sinni sem allra fyrst. Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir Brynjar Þór Elvarsson, Óliver Thanh Tung Vú, Bryngeir Valdimarsson og Ásgeir Viktorsson, dæmdu þennan leik bara prýðilega og fá sjö í einkunn fyrir vaskleg störf sín að þessu sinni. Stemming og umgjörð Fínasta mæting á Hlíðarenda í kvöld og stemmingin góð. Frábært fótboltaveður og Blikar nutu þess í botn að láta mörkunum rigna í súldinni á Valsvellinum. Besta deild kvenna Valur Breiðablik
Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn