Umferð eykst milli ára Sigurgeir Þorkelsson skrifar 8. júlí 2026 06:31 Vegagerðin mælir umferð á Hringveginum. Aukning milli ára skýrist helst af aukinni umferð á Vesturlandsvegi við Úlfarsfell. Vísir/Vilhelm Umferð á Hringveginum eykst um eitt prósent milli ára samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar á fyrstu sex mánuðum ársins. Telst sú aukning lítil þar sem árleg aukning frá árinu 2022 til 2025 nam 4,8 prósentum.
Borið saman við sama tímabil í fyrra hefur umferð aukist um þrjú prósent á þriðjudögum og miðvikudögum og um 3,6 prósent á sunnudögum. Umferð hefur á sama tíma minnkað á mánudögum, um 2,1 prósent, og föstudögum, um eitt prósent. Er áhugavert að velta fyrir sér hvort þetta tengist breyttu vinnumynstri landsmanna síðustu ár með aukinni fjarvinnu og styttingu vinnuvikunnar. Í mælingum mars, apríl og maímánaða mældist samdráttur milli ára en sú þróun snerist við í júní þegar umferð jókst um 3,6 prósent milli ára. Fram kemur í tilkynningu Vegagerðarinnar að hluta aukningarinnar megi rekja til verulegrar fjölgunar ökutækja upp á 9,5 prósent þar sem mælt er við Úlfarsfell. Mestur hlutfallslegur samdráttur mældist á Mývatnsöræfum, 4,2 prósent. Spá Vegagerðarinnar gerir ráð fyrir því að umferð muni aukast um 3,5 prósent seinni sex mánuði ársins, samanborið við fyrra ár. Þegar tölur Vegagerðarinnar eru hópaðar eftir landshlutum sést að höfuðborgarsvæðið og Norðurland eru einu svæðin þar sem umferð eykst á fyrstu sex mánuðum ársins, um 2,1 prósent annars vegar og 1,6 prósent hins vegar. Í öðrum landshlutum dregst hún saman um eitt prósent eða minna.
Umferð Samgöngumál Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Sjá meira