„Planið“ sé byrjað að virka Boði Logason skrifar 23. júní 2026 14:24 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er í viðtali í Íslandi í dag í kvöld. Þátturinn hefst strax að loknum kvöldfréttum klukkan 18:55. Vilhelm Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gestur Íslands í dag á Sýn í kvöld þar sem hún sest niður með Elísabetu Ingu Sigurðardóttur fréttamanni og fer meðal annars yfir störf þingsins á liðnum vetri, efnahagsmálin og þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst.
Í myndbroti úr viðtalinu, sem má horfa á hér að neðan, segir Kristrún að „planið“ sem Samfylkingin talaði um fyrir kosningar sé byrjað að virka. Er ekki smá partur af þér sem óttast að mögulega gangi þetta ekki upp? Stendurðu alveg keik, getur horft í augun á landsmönnum og sagt: „Planið mitt mun ganga, þetta verður betra.“? „Planið er byrjað að ganga og ég hvet bara alla landsmenn og fjölmiðlamenn til að kynna sér útspil Samfylkingarinnar í aðdraganda kosninga, orkumálin. Við erum búin að samþykkja tvo ramma á þessu ári. Það voru erfiðleikar eiginlega allt síðasta kjörtímabil að klára rammamálin,“ segir Kristrún. Allt viðtalið við Kristrúnu má sjá í Íslandi í dag í kvöld klukkan 18:55, í opinni dagskrá á Sýn og Vísi. En, hvað með efnahagsmálin? „Já, en málið er að efnahagsmálin eru ekki bara eini parturinn af þessu plani, vegna þess að orkumálin eru stór hluti af hagvaxtargetu kerfisins. Ef það á að laga efnahagsmálin, ef það á að taka til í efnahagsmálunum, þá þurfum við að vinna í hagvaxtargetunni líka. Það sama á við í heilbrigðismálum, sem við vorum líka kosin út á og Alma hefur staðið sig stórkostlega í því á mörgum sviðum heilbrigðismálanna. Það er eins í húsnæðismálunum, sem er nú stór partur af efnahagsmálunum. Við samþykktum hérna frumvarp til að hemja á Airbnb, ný húsaleigulög, við erum með ákvæði inni núna eftir nýja löggjöf sem á að koma í veg fyrir brask á húsnæðismarkaði“ segir Kristrún. Bendir Kristrún einnig á að bakslag hafi komið í að lækka vexti vegna stöðunnar í Miðausturlöndum. „Allt þetta, Elísabet, er partur af því að taka til í efnahagsmálunum. Við höfum líka séð vexti þrátt fyrir allt lækka heilt yfir frá því að ríkisstjórnin tók við. Já, við fengum bakslag að miklu leytinu til vegna stöðunnar í Miðausturlöndum. Það verða líka svona kannski einhverjar breytingar sem koma til vegna þess að við erum að breyta kerfum, við erum að breyta gjaldskrám, og árangur er aldrei bara svona bein lína upp á við. En það er strax árangur til staðar,“ segir hún. Ísland í dag hefst strax að loknum kvöldfréttum í kvöld, klukkan 18:55, í opinni dagskrá á Sýn og Vísi.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Orkumál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ Sjá meira