Hrafni bjargað af þaki Byko Jakob Bjarnar skrifar 22. júní 2026 13:14 Slökkviliðið hafði snör handtök og björguðu krumma úr klípunni. Aðalsteinn Einarsson verkstjóri hjá Byko segir að þeir hafi ekki haft tök á því að taka mynd af björguninni, þeir hafi þurft að sinna fólki sem bar að og þurfti að sækja vörur. Myndin er því ekki af þeim hrafni sem um ræðir. vísir/sigurjón Þegar starfsmenn mættu til starfa í morgun, í Kjalarvogi nánar tiltekið, blasti við hrafn hangandi í girni sem fast var við þak Byko. Starfsmenn Húsasmiðjunnar höfðu samband við lögreglu sem sendi slökkviliðið á staðinn. Slökkviliðið virtist vel búið til að sinna verkefnum sem þessum, þeir höfðu snör handtök og björguðu krumma. „
Hann var fastur í einhverju girni og við höfum nú látið fjarlægja það,“ segir Aðalsteinn Einarsson, verkstjóri í Byko í Kjalarvogi 16. Hann segir þetta ekki alvarlegt tilvik og telur girnið sem krummi flækti sig í sennilega hafa fokið upp á þakið. „Krummi var þokkalega lifandi þegar hann var tekinn niður. Þeir tóku hann og fóru með hann til dýralæknis.“ Að sögn Aðalsteins er hrafnapar með laup skammt frá og honum sýnist sem þrír hrafnar séu nú komnir aftur, eins og var. Sjálfir eiga þeir ekki tæki sem ná upp á þak og var því tækjabíll frá slökkviliðinu fenginn til leiks. „Þeir virtust svo vanir að þeir voru með allan búnað, alveg klárir. Þetta er örugglega ekki í fyrsta skipti sem þeir lenda í þessu, og ekki það síðasta. Þetta var fullorðinn hrafn, ekki ungagrey sem er hér stundum á vappi í kring, brjálaður og vill fá að borða.“ Aðalsteinn segir hrafnana meðalgæfa og þeir láti alveg vita ef þeir eru ósáttir við mannskapinn. Dýralíf er talsvert í kringum Byko, gæsir, dúfur og allur pakkinn og svo er talsverð veiði við höfnina. Og þá er strollan með stöng á kæjanum. „Flestir veiða og sleppa. En ekki allir. Við myndum nú ekki borða fisk sem kemur hér upp úr höfninni, þar sem olíubrákin er fyrir ofan og ætið vart kræsilegt. En einhverjir taka fiskinn. Þú mátt enn veiða þér til matar, það er ekki búið að banna það.“
Reykjavík Dýr Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira