Körfubolti

Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stiller var alltaf með símann á lofti alla úrslitakeppnina.
Stiller var alltaf með símann á lofti alla úrslitakeppnina. Vísir/ Gregory Shamus/Getty Images

Leikarinn og leikstjórinn Ben Stiller hefur staðfest að hann sé að vinna að umfangsmikilli heimildarþáttaröð um NBA-meistarana New York Knicks í samstarfi við HBO og A24.

Stiller hefur elt New York Knicks í áratugi og sást til hans með símann á lofti í gegnum alla úrslitakeppnina núna í ár. Nú hefur verið staðfest að myndefni úr síma Stiller verður notað í nýja þáttaröð þar sem fyrsta titli New York í 53 ár verða gerð góð skil. Ben Stiller hefur einstakan aðgang að liðinu enda einn helsti stuðningsmaður liðsins.

Stiller hefur meðal annars tekið upp efni frá leikjum, inni í búningsklefum og bak við tjöldin.

Samkvæmt Stiller nýtur verkefnið fulls stuðnings frá NBA-deildinni, heimavelli Knicks, Madison Square Garden, og eigendum félagsins. Tökur munu halda áfram á næsta tímabili og því er ólíklegt að þættirnir komi út fyrr en á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×