Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Freyja Þórisdóttir skrifar 15. júní 2026 08:19 Miðlarnir Snapchat, TikTok, X, og Instagram eru meðal þeirra sem börn yngri en 16 ára munu ekki mega hafa aðgang að. Getty Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefur tilkynnt að börnum yngri en 16 ára verði bannað að nota samfélagsmiðla en verði bannið samþykkt á þingi muni það taka gildi vorið 2027. Hann segir, í ræðu sinni í Downingstræti, að samfélagsmiðlar geri börn óhamingjusöm, auðveldi eineltisfólki að níðast á börnum og séu „hannaðir til að vera ávanabindandi“.
Þá er haft eftir honum í lifandi vakt breska ríkisútvarpsins að „bann myndi gefa börnum meiri tíma, öryggi og meira frelsi til að þroskast“ en hann bætir við að þetta sé allt sem nokkur foreldri vilji. Þau vilji vita að Bretland verði betra fyrir börnin þeirra. Þá bætir hann við að ríkisstjórnin sé „ekki reiðubúin að gefa eftir“ varðandi öryggi og hamingju barna og að það eigi einnig við um reglusetningu og framfylgd þessa banns. Hann segir að ríkisstjórnin hafi hlustað á og lært af löndum eins og Ástralíu, þar sem svipað bann hefur þegar verið tekið upp. Breska ríkisstjórnin hefur birt frekari upplýsingar um bannið á vefsíðu sinni. Bannið nái yfir fjölda miðla Þar segir meðal annars að bannið myndi ná yfir veitur þar sem notendur eigi í samskiptum sín á milli, en að tilgangur þeirra sé að gera félagsleg samskipti möguleg og þær leyfi notendum að birta efni. Því muni bannið ná yfir meðal annars Snapchat, TikTok, YouTube, Instagram, Facebook og X. Skilaboðaþjónustur eins og WhatsApp og Signal yrðu einnig innifaldar í banninu á samfélagsmiðlum. Ríkisstjórnin segist ætla að ganga „lengra en almennt bann við samfélagsmiðlum“ í yfirlýsingunni með því að loka fyrir „skaðlega virkni eins og beinar útsendingar og samskipti ókunnugra við börn yngri en 16 ára“. Takmarkanir munu ásamt banninu ganga lengra en í nokkru öðru landi og munu eiga við um fleiri tegundir netþjónustu, þar á meðal leikjasíður, segir í yfirlýsingunni. Þá segir einnig að í júlí muni frekari upplýsingar um mögulegt útgöngubann að næturlagi og frekari bönnu vera gefnar út.
Samfélagsmiðlar Bretland Börn og uppeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira