Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. júní 2026 13:21 Hjólhýsabyggðin er núna við Sævarhöfða. Vísir/Anton Brink Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að segja upp samningi við Samtök hjólabúa um afnot af um 3900 fermetra landi í Gufunesi. Tveir mánuðir eru síðan að samningurinn var undirritaður.
Á fundi borgarráðs 16. apríl 2026 var samþykkt að gerður yrði samningur fyrir hönd Samtaka hjólabúa, félags sem hafði þá ekki verið stofnað. Samningurinn var undirritaður af Heiðu Björgu Hilmisdóttur, þáverandi borgarstjóra, og forsvarsfólki nýstofnaðra Samtaka hjólbúa. Borgarráð fundaði á ný í gær en nú mynda Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Viðreisn meirihluta. Ákveðið var að segja upp samningnum en í honum er ákvæði um að báðum aðilum sé heimilt að segja samningnum upp með þriggja mánaða skriflegum fyrirvara. Hjólhýsabyggðin hefur staðið við Sævarhöfða í tvö ár, var þar áður á tjaldsvæðinu í Laugardal, en loks átti að færa hana yfir í Gufunes. Auglýst var eftir nýtingu borgarlands í Gufunesi og barst aðeins umsókn frá hjólabúum. Samningurinn var til tveggja ára og hljóðaði leigugjaldið upp á 202 þúsund krónur á ári. Í fréttatilkynningu frá borginni þar sem greint er frá uppsögn samningsins segir að frumgreining á kostnaði við framkvæmdir til að undirbúa landið nemi um fimmtíu til hundrað milljónum króna. Reykjavíkurborg var gert að tengja svæðið við vatns- og rafveitu og koma fyrir salernis- og sturtuaðstöðu í gámaeiningum. Sjá nánar: Hjólhýsabyggð í Reykjavík Einnig er tekið fram að sviðið hafi ekki gefið út afnotaleyfi vegna hjólhýsa, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur segir að aðkoma þeirra að svæðinu hafi snúið að menguðum jarðvegi og frágangi urðunar og að lokum að samkvæmt niðurstöðu starfshóps í september 2025 væri varanleg búseta í hjólhýsum „að verulegu leyti ósamrýmanleg gildandi lagaumhverfi“. Uppsögnin ömurleg Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Vinstrisins, segir uppsögn samningsins vera ömurlega. Á liðnu kjörtímabili var hún fulltrúi í meirihluta. „Miður er að sjá að nýr hægri meirihluti segi upp afnotasamningi sem er nýgerður við hjólabúa með engin áform um annað fyrirkomulag,“ skrifar hún í færslu á Facebook. Sanna Magdalena úr Vinstrinu,Vísir/Vilhelm „Hjólabúar hafa lengi verið við Sævarhöfða í rými sem hentar ekki og því var ánægjulegt að viðeigandi staðsetning hafi verið fundin fyrir hópinn sem hafði búið við mikla óvissu. Í samningi um afnotasamning er skýrt kveðið á um að hið leigða svæði skuli eingöngu nýtt til óhagnaðardrifinna afnota og að hjólabúar greiði fyrir afnot af svæðinu.“ Sanna segir það hlutverk yfirvalda að mæta því að hópur fólks kjósi að búa með þessum hætti. Það sé því miður að hægri flokkarnir slíti samningnum svo skömmu síðar.
Hjólhýsabyggð í Reykjavík Reykjavík Borgarstjórn Húsnæðismál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira