Frábær árangur Teits í alþjóðlegri keppni Freyja Þórisdóttir skrifar 7. júní 2026 15:02 Teitur Mar M. Steinunnarson tók þátt í Canguro Matemático 2026, alþjóðlegri stærðfræðikeppni, og varð 1. í sínum skóla, 2. í Galisíu og 10. á Spáni í sínum aldursflokki, 13 ára. Hann fékk 136,25 stig af 150 mögulegum. Getty/Aðsend Teitur Mar M. Steinunnarson tók þátt í alþjóðlegri stærðfræðikeppni í vor og fékk á dögunum þær fréttir að hann hefði landað fyrsta sætinu í sínum skóla, öðru sætinu í Galisíuhéraði og tíunda sæti á öllum Spáni í sínum aldursflokki. Teitur, sem er þrettán ára, flutti þriggja ára gamall til Spánar ásamt fjölskyldu sinni og talar í dag spænsku, galísku, ensku og íslensku. Þá er hann stoltur af Íslandstengingu sinni og nýtir hvert tækifæri til að minnast á Ísland í skólaverkefnum.
Keppnin Canguro Matemático er opin öllum nemendum á unglinga- og framhaldsskólasviði á Spáni en í ár voru um ríflega tuttugu þúsund keppendur sem tóku þátt. „Keppnin er opin, allir í skólanum mega skrá sig og taka þátt og hann gerði það ásamt bekkjarfélögum sínum síðasta haust. Þeir undirbjuggu sig einu sinni í viku síðan í október,“ segir Steinunn Margrétardóttir, móðir Teits, í samtali við blaðamann Vísis. Teitur var áður nemandi í Montessori Compostela, 1.–6. bekk og síðasta árið í leikskóla, en byrjaði í haust í IES Sar, sem er fyrir 7.–10. bekk og síðan 11.–12. bekk.Aðsend Hún bætir því við að keppnin hafi verið í mars, „svo komu niðurstöður um daginn, sem komu mjög skemmtilega á óvart,“ segir Steinunn en hún segir Teit hafa beðið ægilega spenntan eftir niðurstöðum og „vonast eftir því að rata mögulega í efstu hundrað“. Úr varð að Teitur var með 136,25 stig af 150 mögulegum og lenti í tíunda sæti í sínum aldursflokki, en ríflega sjö þúsund voru skráðir til keppni á sama aldri og Teitur. Þá var hans árangur í keppninni annar besti í Galisíuhéraði og bestur í skólanum sem Teitur er í. Ríflega tuttugu þúsund manns tóku þátt Teitur æfir handbolta sem markmaður með félagi sem heitir Ribadosar. Bróðir hans, Ari Steinunnarson, er þjálfari hans og bróðir hans, Rökkvi Steinunnarson, æfir handbolta með Víkingi á Íslandi.Aðsend Samkvæmt samantekt á síðu keppninnar kepptu ríflega tuttugu og eitt þúsund manns í ár og þar af voru sjö þúsund keppendur á sama aldursþrepi og Teitur, 1 ESO. „Keppnin reynir ekki beint á kunnáttu í skólastærðfræði, þetta eru frekar svona þrautir og lesdæmi,“ segir Steinunn en refsistig eru gefin fyrir röng svör og því mikilvægt að vanda til verka. Teitur fékk verðskuldaða athygli fyrir frábæran árangur í keppninni og hafa kennarar og aðrir starfsmenn skólans fengið hann til þess að snúa sér að ólympískri stærðfræði á næsta skólaári. Slík stærðfræði snýst um að nýta rökhugsun og frumleika til að leysa flóknar þrautir frekar en að prófa hefðbundinn utanbókarlærdóm eða stærðfræðigreiningu. Teitur og vinur hans Arán kynna Ísland fyrir skólafélögum sínum, mynd síðan Teitur var í Montessori Compostela.Aðsend En líkt og fyrr segir er Teitur duglegur að æfa sig í íslenskunni og nýtir hvert tækifæri til þess að láta reyna á íslandstenginguna. „Hann velur sér mjög oft Íslendinga fyrir skólaverkefni um fólk og þá til dæmis mikið um Vigdísi Finnboga,“ segir Steinunn. Úr Montessori yfir í hefðbundinn skóla Teitur ásamt Steinunni, móður sinni, og Ara, bróður sínum, við Skógafoss í einni Íslandsheimsókninni.Aðsend Steinunn segir blaðamanni frá því að eldri synir hennar hafi átt erfitt með að fóta sig í spænska skólakerfinu eftir að hafa flutt frá Íslandi. Því hafi þau ákveðið að skrá Teit í Montessori-skóla við komuna út. „Skólakerfið hérna úti er mjög ólíkt því sem Íslendingar eru margir vanir,“ segir hún en dæmi séu um það að nemendur í fyrsta bekk í grunnskóla þurfi að taka endurtektarpróf ef þeim gangi ekki nógu vel í fyrra skiptið. Vilja halda íslenskunni við Því völdu þau að skrá Teit í Montessori-skóla en slíkir skólar vinna eftir aðferðafræði Mariu Montessori og þar er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, aldursblandaða bekki og hagnýta lífsleikni, sem gerir börnum kleift að kanna hugtök á sínum eigin hraða. Teitur ásamt bræðrum sínum, Ara og Rökkva, í Perlunni árið 2025.Aðsend „Það er allt kennt á galísku hérna og eitthvað á spænsku eins og við þekkjum hana en með því að skrá Teit í Montessori-skóla var meiri sveigjanleiki til þess að geta kennt honum íslensku,“ segir Steinunn og bætir við að Teitur tali í dag galísku, spænsku, ensku, íslensku og læri einnig portúgölsku í skólanum. Þau tali íslensku heima við. En svo í haust varð Teitur að skipta yfir í hefðbundið nám og segir Steinunn það hafa gengið eins og í sögu að skipta yfir í hefðbundið kerfi. „Ég hafði pínu áhyggjur af því hvort þetta yrði honum ofviða en hann hefur blómstrað félagslega í nýja skólanum og stendur sig ekkert smá vel,“ segir Steinunn.
Íslendingar erlendis Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira