Ljósið fékk langtímasamning Áróra L Davíðsdóttir skrifar 2. júní 2026 13:57 Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og forsvarsmenn Ljóssins skrifuðu undir nýjan langtímasamning í dag. Vísir/Vilhelm Endurhæfingarmiðstöðin Ljósið skrifaði í dag undir nýjan fjögurra ára samning um endurhæfingaþjónustu fyrir einstaklinga sem hafa greinst með krabbamein. Síðasti samningur var undirritaður árið 2020 og gilti til ársloka 2023, en síðan þá hefur enginn langtímasamningur verið í gildi.
Alma Möller heilbrigðisráðherra, Sigurður H. Helgason forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og forsvarsmenn Ljóssins skrifuðu undir nýjan langtímasamning í húsnæði Ljóssins í dag. Hámarksfjárhæð samningsins er rúmar 487 milljónir króna á ári. Í nýundirrituðum samningi býðst endurhæfingarþjónusta Ljóssins áfram skjólstæðingum að kostnaðarlausu. Sérstök áhersla er lögð á aðgengi landsbyggðarinnar að sérhæfðri endurhæfingarþjónustu. Samningurinn gerir einnig grein fyrir aukningu í krabbameinsgreiningu á næstu árum samkvæmt spá Krabbameinsfélags Íslands. Nýi samningurinn er undirritaður til fjögurra ára.Vísir/Vilhelm „Við í Ljósinu erum afar þakklát heilbrigðisráðherra og fjárlaganefnd fyrir þann mikilvæga stuðning sem felst í þessum nýja langtímasamningi. Það skiptir okkur miklu að virði þeirrar þjónustu sem hefur verið byggð upp í Ljósinu síðustu tuttugu ár sé metin að verðleikum. Með samningnum er fest í sessi sú heilbrigðisþjónusta sem hefur ítrekað sýnt fram á mikinn ávinning fyrir þjónustuþega okkar og samfélagið allt. Fjármögnun heilbrigðisþjónustunnar er nú tryggð. Áfram þarf Ljósið að treysta á stuðning almennings og velunnara til að standa undir húsakosti og búnaði sem nauðsynlegur svo við getum haldið áfram að veita þjónustu af sömu gæðum,“ segir Erna Magnúsdóttir stofnandi og framkvæmdastýra Ljóssins. Síðasti langtímasamningur Ljóssins og ríkisins var undirritaður árið 2020 og gilti til ársloka 2023. Síðan þá hafa samningar Sjúkratrygginga og Ljóssins verið til skamms tíma. Ríkisstjórnin sætti gagnrýni stjórnarandstöðu fyrir forgangsröðun fjárlaga síðasta haust. Þá gerði ríkisstjórnin ekki ráð fyrir 200 milljóna króna viðbótarframlagi til Ljóssins í fjárlagafrumvarpi þessa árs, sem samsvarar 40% skerðingu frá árinu áður. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði í svari við fyrirspurn á Alþingi í október 2025 að hún vildi að fjárveiting ríkisins til samtaka á borð við Ljósið bærust með langtímasamningum frekar en einskiptisframlögum.
Krabbamein Sjúkratryggingar Heilbrigðismál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira