Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Ágúst Orri Arnarson skrifar 27. maí 2026 09:05 Dagur Sigurðsson skammaði EHF duglega á blaðamannafundi. VÍSIR/VILHELM Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu í handbolta, hefur verið sektaður um rúma hálfa milljón króna fyrir ræðu sem hann flutti á síðasta Evrópumóti. Króatíska handknattleikssambandið var einnig sektað fyrir að flagga óleyfilegum fána.
Dagur hélt einræða á blaðamannafundi fyrir undanúrslitaleik Króatíu og Þýskalands. Þar gagnrýndi hann skipulag mótsins og líkti leikmönnum Króatíu við „frosinn kjúkling í skyndibitakeðju EHF“. Hann sagði Evrópumótið hafa sannað að evrópska sambandinu sé alveg sama um leikmennina og liðin sem keppa á mótinu. Fyrir þessi ummæli fékk Dagur sekt upp á 4.000 evrur, sem jafngilda um 575 þúsund krónum. Helmingur þeirrar upphæðar er skilorðsbundinn til tveggja ára. Dagur þarf því að greiða 2.000 evrur strax, eða um 287 þúsund krónur, og aðra eins upphæð ef hann gerist brotlegur aftur. Króatíska sambandið var sektað fyrir að brjóta fánalög. Sanjin Strukic/Pixsell/MB Media/Getty Images Króatíska handknattleikssambandið fékk einnig sekt frá EHF, fyrir að brjóta reglur við verðlaunaafhendingu þegar Króatía tók við bronsverðlaunum eftir sigur gegn Íslandi. Sambandið fékk 10.000 evra sekt fyrir að flagga óleyfilegum fána en 2.500 evrur eru skilorðsbundnar. Ekki kemur fram hvaða fánalög Króatía braut en Sportske Novosti telur líklegast að fáninn vinstra megin á myndinni hér fyrir ofan hafi verið vandamálið. Á honum stendur „Ljubuški“ sem er bær í Hersegóvínu með sterk króatísk tengsl og sögu af átökum milli Bosníumanna og Króata í stríðinu undir lok síðustu aldar. Sektunum er hægt að áfrýja á næstu sjö dögum.
EM karla í handbolta 2026 Handbolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Sjá meira