Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Agnar Már Másson og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 24. maí 2026 15:53 Frá aðgerð lögreglu á Kársnesi í dag. Samsett Mynd Karlmaður var leiddur út í járnum eftir umfangsmikla lögregluaðgerð við Hafnarbraut á Kársnesi í Kópavogi síðdegis í dag.
Lögregla er enn á vettvangi en myndskeið sem Vísir hefur undir höndum sýnir tvo lögregluþjóna leiða mann í handjárnum niður stigagang og út úr húsinu að Hafnarbraut 12. Lögreglan þegir þunnu hljóði en sjónarvottur sagði við Vísi að að alblóðugur maður hafi gengið inni í bakarí í nágreninu um svipað leyti og aðgerðin átti sér stað og sagst hafa verið skotinn í höndina. „Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs í hádeginu. Brugðist var hratt við og var lögreglan með mikinn viðbúnað í ljósi tilkynningarinnar,“ sagði í tilkynningu frá lögreglunni eftir hádegi í dag. „Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu,“ bætir lögreglan við. Vísir hefur fengið staðfest frá embætti Ríkislögreglustjóra að sérsveitarmenn hafi verið ræstir út og má sjá af myndskeiðum af vettvangi að þeir eru þungt vopnaðir. Þá virðist sem lögreglumenn hafi verið að leita að einhverju í runnum í garði við húsið, eins og sjá má á myndum. Lögreglumaður virðist leita að einhverju í runna.Vísir Lögreglan á vettvangi.Vísir/Lýður Valberg Lögregla að störfum við Hafnarbraut á Kársnesi.Vísir/Lýður Valberg Furðu lostinn nágranni. Og hundur.Vísir/Lýður Valberg
Kópavogur Lögreglumál Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira