Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Samúel Karl Ólason skrifar 8. maí 2026 11:11 Lögregluþjónar sitja um bankann, þar sem ótilgreindur fjöldi ræningja heldur fólki í gíslingu. AP/Thomas Frey Umfangsmikil lögregluaðgerð stendur nú yfir í bænum Sinzig í Þýskalandi þar sem bankaræningjar hafa tekið fólk í gíslingu. Þungvopnaðir lögregluþjónar sitja um útibú Volksbank í miðbæ Sinzig. Óljóst er hve margir ræningjarnir eru en þeir reyndu að ræna bankann þegar brynvörðum bíl var ekið þangað í morgun.
Þá er ekki heldur vitað hve margir gíslarnir eru inni í bankanum, samkvæmt frétt Bild. Lögreglan notast við þyrlur til að vakta bankanna og bæinn og sérsveitarmenn eru sagðir fylgjast með öllum útgöngum úr bankanum. Íbúar hafa varið hvattir til að halda sig innandyra en lögreglan segist hafa stjórn á aðstæðum og að ógnin gagnvart bæjarbúum sé takmörkuð. Sinzig er um sautján þúsund manna bær nærri Bonn. DW segir lögregluna annars verjast fregna af stöðunni, þar sem „einhverjir“, væntanleg ræningjarnir, gætu verið að fylgjast með fréttum. „Við verðum að bíða og sjá hvernig aðstæður þróast,“ hefur miðillinn eftir talsmanni lögreglunnar. Lögreglan segir að það gæti tekið langan tíma að binda enda á gíslatökuna. Viðbragðsaðilar eru samkvæmt Bild að koma upp að reisa aðstöðu þar sem hægt yrði að hlúa að særðum eða slösuðum. Lögreglan segir það eingöngu varúðarráðstöfun. Fréttin hefur verið uppfærð.
Þýskaland Erlend sakamál Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira