Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Kjartan Kjartansson skrifar 7. maí 2026 11:05 Kísilver Elkem á Íslandi er á meðal þeirra fyrirtækja sem þurfa að kaupa losunarheimildir í ETS-kerfinu. Fyrirtækið getur sparað sér fé með því að þróa tækni til þess að fanga og farga kolefni sem losnar frá framleiðslunni. Elkem Nýsköpunarverkefni Elkem á Grundartanga og Carbfix um að kanna möguleikann á að fanga og farga kolefni frá kísilverinu hlaut tæplega tvö hundruð milljón króna styrk úr Orku- og loftslagssjóði. Alls var á fjórða hundrað milljóna króna veitt í verkefni til að draga úr losun stóriðju.
Styrkurinn til kolefnisgeymslu og losunargreiningar á Grundartanga nemur 198,7 milljónum króna. Markmið hans er sagt að hraða þróun tæknilausna sem geta dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda frá iðnaði sem fellur undir evrópska viðskiptakerfið með losunarheimildir (ETS). Elkem á í samstarfi við Carbfix, dótturfélag Orkuveitunnar, um verkefnið. Í því á að meta möguleikana til að fanga útblástur frá kísilverinu og geyma hann varanlega í jörðu. Völdu Noreg fram yfir Ísland Verkefninu á Grundartanga er skipt í tvo áfanga samkvæmt upplýsingum frá Carbfix. Í þeim fyrri á að mæla og greina losun frá kísilverinu og rannsaka hversu vel jarðlög á svæðinu henta til að geyma koltvísýring. Þær athuganir eiga að leggja grunninn að tilraunaverkefni í framtíðinni. Í seinni áfanganum ætlar Carbfix að standa fyrir rannsóknarborunum og jarðfræðilegri könnun sem á meðal annars að leiða í ljós á hvaða dýpi hentar að dæla kolefni. Carbfix þróaði aðferð til þess að farga kolefni varanlega í jörðu með því að dæla uppleystum koltvísýringi frá Hellisheiðarvirkjun ofan í jörðu. Neðanjarðar binst koltvísýringum jarðlögunum í steindum. Elkem skoðaði að hefja tilraunverkefni af þessu tagi á Grundartanga á sínum tíma. Á endanum valdi fyrirtækið frekar að prófa sig áfram með tæknina í Rana í Noregi. Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, sagði Vísi í fyrra að Noregur hefði orðið fyrir valinu þrátt fyrir að förgunarlausn Carbfix væri hagkvæmari vegna þess að nýsköpunarstyrkur hefði fengist til þess í Noregi sem Ísland gæti ekki keppt við. Þá hafði Carbfix þegar óskað eftir framkvæmdaleyfi til rannsóknarborana á Grundartanga með það fyrir augum að binda allt að 450.000 tonn af koltvísýringi í jörðu á ári. Það jafngilti um fjórðungi af ársloun stóriðju á Íslandi. Prófa sig áfram með kolefnisfría álframleiðslu Tilraunaverkefni Norðuráls, Eflu, Háskólans í Reykjavík og fleiri undir forystu tæknifrirtækisins Arctus Aluminium um kolefnislausa álframleiðslu fékk 161,8 milljóna króna styrk úr Orku- og loftslagssjóð. Það verkefni byggir á nýrri rafgreiningaraðferð þar sem súrefni losnar í stað koltvísýrings við álframleiðslu. Aðferðin á einnig að geta dregið úr orkunotkun og nýta hráefni betur.
Loftslagsmál Tækni Stóriðja Hvalfjarðarsveit Kjósarhreppur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Sjá meira