„Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Samúel Karl Ólason skrifar 7. maí 2026 08:24 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Vísir/Einar Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir aðstæður í flugfélagarekstri í heiminum í dag mjög krefjandi og breytilegar.
Rætt var við Boga í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Icelandair sendi í gærmorgun út tilkynningu um að til stæði að draga úr framboði í haust. Er það að miklu leyti vegna verðhækkana á eldsneyti. „Við erum að glíma við krefjandi aðstæður í fluginu út um allan heim,“ sagði Bogi. „Það er ekki bara hérna á Íslandi. Eldsneytisverð er að hækka fyrir alla og það er einn af okkar stærstu kostnaðarliðum. Ástandið er frekar krefjandi og við erum að bregðast við því.“ Hann sagði að átökin í Mið-Austurlöndum og lokun Hormússunds hefðu haft mikil áhrif. Eldsneytiskostnaður hefði tvöfaldast og stundum rúmlega það. Verðið tæki miklum og hröðum breytingum. „Við vorum reyndar varin þegar við komum inn í árið. Vorum búin að verja um fjörutíu prósent af áætlaðri notkun á þessu ári, sem kemur sér vel. Engu að síður hefur þetta mikil áhrif.“ Hann sagði sambærilegar aðgerðir í gangi hjá öllum flugfélögum. Verið væri að skera niður í kostnaði og leita að hagræðingaraðgerðum hvar sem þær mætti finna. Hjá Icelandair er einnig verið að skoða að hætta rekstri nokkurra Boeing 757-þota. Aðspurður um það hvaða áhrif þetta hefði á almenna neytendur sagði Bogi að flugmiðinn hefði hækkað í verði um allan heim, vegna meiri kostnaðar. Það væri þó mismunandi eftir mörkuðum hve mikil hækkunin hefði verið. Hann sagði hækkanir á olíu og öðru ekki fara að fullu út í fargjaldaverðið, í það minnsta ekki í fyrstu. Bogi sagði Icelandair standa vel þegar kæmi að rekstri. Efnahagsreikningurinn væri mjög sterkur, sem væri gífurlega mikilvægt við krefjandi aðstæður. „Við höfum verið að breyta áherslum síðustu átján mánuði í ljósi þess að heimurinn breyttist aðeins á fyrsta ársfjórðungi í fyrra, þegar Trump hóf að setja tolla á allan heiminn og þess háttar. Það hafði áhrif á flæðið, dollarinn veiktist og fyrir okkur var best að setja áhersluna á til og frá Íslandi, í stað markaðsins yfir hafið, í gegnum Ísland.“ Bogi sagði það hafa gengið vel. Hlusta má á viðtalið við Boga í spilaranum hér að neðan. Til stendur að draga úr framboði hjá Icelandair um fimm prósent í haust. Bogi segir að áfangastöðum verði ekki fækkað heldur verði tveimur bætt við. Verið sé að taka út flugferðir á sömu staðina í staðinn. Þegar kemur að flugfargjöldum sagðist Bogi hafa nýlega séð gamla auglýsingu Icelandair frá 1998 á skrifstofu í Keflavík. Þar hafi ferðir til helstu borga Evrópu verið auglýstar. „Það voru bara sömu verð og við erum að bjóða í dag, sem lægstu verð.“ Bogi sagði flugfargjöld engan veginn hafa fylgt verðbólgu í gegnum árin. Fluggeirinn hefði náð að þróa sig, hagræða og fjárfesta í nýrri tækni til að halda verði niðri. Nýjar flugvélar væru til að mynda að eyða mun minna eldsneyti en þær gömlu og það skipti miklu máli. Bogi sagði heiminn mjög óútreiknanlegan fyrir flugfélög og ekki síst fyrir okkur Íslendinga hér á miðju Atlantshafi. Það væri gífurlega mikilvægt að reyna að festa þá þætti sem hægt væri að hafa stjórn á og að bregðast hratt og vel við ófyrirsjáanlegum vendingum. „Það eru ótrúlega margir þættir sem við stjórnum ekki, sem hafa áhrif og hreyfast hratt,“ sagði Bogi. „Maður mætir í vinnunna einhvern daginn og ætlar að fara að gera eitthvað en þá hefur heimurinn farið á hvolf og við þurfum að gera eitthvað allt annað.“ Einnig var rætt við Boga í kvöldfréttum Sýnar í gærkvöldi.
Icelandair Fréttir af flugi Bensín og olía Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bítið Neytendur Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira