Við viljum ekki Sæbrautarstokk í nýja nefnd Regína Ásvaldsdóttir skrifar 4. maí 2026 06:00 Nýtt deiliskipulag fyrir Sæbrautarstokk er á leið í auglýsingu eftir samþykkt borgarráðs í vikunni. Um er að ræða eins kílómetra kafla á Sæbrautinni sem verður settur í stokk frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Verkefnið er hluti af samkomulagi í samgöngusáttmálanum og er lykilverkefni í samgöngum borgarinnar og forsenda fyrir bættu umferðarflæði, aukinni afkastagetu og tengingu við fyrirhugaða Sundabraut. Á yfirborði stokksins verður grænn hverfisgarður sem bindur saman Vogahverfi og Vogabyggð. Þetta verkefni er eitt af þeim gríðarlegu samgöngubótum sem eru á áætlun í samgöngusáttmálanum. Það eru sex stórar stofnvegaframkvæmdir fyrirhugaðar, meðal annars Miklubrautargöng og mislæg gatnamót Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Endurskoðun þýðir meiri tafir Það var skrifað undir endurskoðaðan samgöngusáttmála haustið 2024, en það tók rúm tvö ár eftir sveitarstjórnarkosningarnar vorið 2022, að ná samkomulagi um nýja forgangsröðun framkvæmda. Á meðan að ekki tókst að ljúka endurskoðun sáttmálans, biðu stór verkefni enda óvissa um samninginn. Það veldur mér því miklum vonbrigðum að heyra fulltrúa þeirra sömu flokka og stóðu að samkomulaginu haustið 2024 tala um að nú þurfi að endurskoða sáttmálann frá grunni. Tveimur árum síðar! Eigum við þá að setja Sæbrautarstokkinn í biðstöðu núna og leyfa borgar- og bæjarstjórnum að bítast um forgangsröðunina á ný? Eða eigum við að trúa því að hin sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu kinki bara kolli og séu tilbúin að setja sín verkefni aftar í forgangsröðunina? Samgöngukerfið tengist allt, og breyting á einum stað, hefur áhrif á þann næsta. Það að ætla endurskoða sáttmálann eftir hverjar sveitarstjórnarkosningar, allt eftir því hvernig vindar blása mun þýða endalausar tafir og samningaviðræður. Undirbúningur og hönnun samgöngumannvirkja er kostnaðarsöm og tímafrek vinna sem kallar á langtímasýn og ákveðna stjórnfestu. Samfylkingin vill standa vörð um samgöngusáttmálann og taka ábyrgð á þeim ákvörðunum sem hafa verið teknar, með framtíðarsýn í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu að leiðarljósi. Við höfum jafnframt sagt að við viljum auka samráð og samtal við hagsmunaaðila á framkvæmdatíma en stóra myndin haldist óbreytt. Er Sjálfstæðisflokkurinn virkilega tilbúinn að setja Sæbrautarstokkinn á ís á meðan að samgöngusáttmálinn fer í enn eina nefndina næsta hálfa kjörtímabilið? Það er að minnsta kosti ekkert Strax í þeim pakka. Höfundur er frambjóðandi í 7. sæti Samfylkingar til borgarstjórnarkosninganna í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Regína Ásvaldsdóttir Samfylkingin Reykjavík Sæbrautarstokkur Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar