Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 1. maí 2026 08:34 Hryðjuverkaógn í Bretlandi var hækkuð um stig í framhaldi af árásinni. AÐ Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir stunguárás sem beindist að tveimur mönnum af gyðingaættum í Lundúnum á miðvikudag. Árásin hefur vakið óhug og reiði í gyðingasamfélagi borgarinnar.
Karlmenn á áttræðisaldri og fertugsaldri voru stungnir í hverfinu Golders Green, hvar margir gyðingar eru búsettir. Þeir voru báðir fluttir á sjúkrahús en voru ekki taldir í lífshættu. Annar þeirra liggur enn á sjúkrahúsi. Breska ríkisútvarpið hefur eftir lögreglu að bresk-sómalskur maður á fimmtugsaldri að nafni Essa Suleiman hafi verið ákærður snemma í morgun fyrir manndrápstilraun gegn báðum mönnunum á miðvikudag. Þá sé hann ákærður fyrir vopnaburð á almannafæri. Loks sé hann ákærður fyrir tilraun til manndráps í öðru hverfi fyrr sama dag. Í framhaldi af árásunum var hryðjuverkaógn í Bretlandi færð upp um eitt stig og telst nú mikil. Stjórnvöld áréttuðu þó að hryðjuverkaógn hefði verið að aukast um hríð og breytingin væri ekki einungis vegna umræddrar árásar. Breska ríkisstjórnin hefur boðað átak gegn gyðingaandúð í landinu og tilkynnti í gær aukin fjárframlög upp á 25 milljónir punda til löggæslu í hverfum þar sem gyðingar eru í meirihluta. Sem fyrr segir hefur árásin vakið óhug meðal gyðinga í Lundúnum. Ephraim Mirvis, yfirrabbíni í Lundúnum, sagði í viðtali við BBC í dag að venjuvæðing gyðingahaturs hefði átt sér stað í borginni undanfarin ár. „Það er ekki nóg að ráðast á einkennin, við þurfum að ráðast á rót vandans,“ sagði Mirvis við miðilinn. Það eitt að ríkisstjórnin hafi viðurkennt að hún hafi hingað til ekki staðið vörð um gyðingasamfélagið í Lundúnum sé þó stórt skref.
Bretland Erlend sakamál Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira