Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Aron Guðmundsson skrifar 30. apríl 2026 12:01 Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta og Jón Halldórsson, formaður HSÍ Vísir/Samsett HSÍ hyggst hrinda B- og C-landsliðum karla í handbolta úr vör. Slíkt geti reynst mikilvægt skref upp á framtíð A-landsliðsins og íslensks handbolta almennt. HSÍ leitar fjármagns fyrir verkefninu.
Snorri Steinn og aðstoðarþjálfari hans Arnór Atlason skrifuðu undir samning við HSÍ til ársins 2032 og er stefnan sett á að ná enn lengra en hefur verið raunin hingað til í þeirra starfi með liðið. Metnaðarfullar áætlanir eru í samningi Snorra Steins um að koma á fót B-landsliði Íslands, skipað leikmönnum sem eru nálægt A-landsliðinu sem og C-landsliðið til að huga að framtíðarlandsliðsmönnum Íslands hér heima. „Þetta er flókið“ Allt kostar þetta peninga og hefur oft verið rætt og ritað um krefjandi fjárhagsstöðu HSÍ. Hvernig verður fyrir ykkur að koma þessu í framkvæmd? „Framtíðarsýnin er alveg skýr hjá okkur,“ segir Jón Halldórsson, formaður HSÍ. „Við ætlum okkur að ná langt. Okkur langar í verðlaun og ætlum að ná í verðlaun til framtíðar. Við erum ekki bara með karlalandsliðið í verkefnum. Við erum líka með kvennalandsliðið okkar. Það landslið var að komast inn á fjórða stórmótið í röð. Sýnin er algjörlega skýr. Allt kostar þetta peninga. Það er engin launung og ég er margoft búinn að segja frá því að það vantar fjármuni. Við höfum kallað eftir því að fá meiri fjármuni frá ríkisvaldinu. Ekki bara í handboltann heldur íþróttahreyfinguna almennt. Þetta er flókið. B-landslið yrði skipað leikmönnum sem eru næstir því að komast í A-landsliðið. „Löndin sem við erum að keppa við eru með verkefni fyrir slík landslið. Eitthvað sem við höfum ekki geta haft fyrir okkar landslið. Á sama tíma erum við búnir að setja það inn í samninginn við Snorra það sem við köllum C-landslið. Til að sinna þessum ungu leikmönnum hér heima á Íslandi til þess að ýta undir sterka framtíð. Svo róum við öllum árum að því að koma þessu B-landsliði, þeim verkefnum í gang.“ Mikilvægt að pressa á þessa hluti Mikilvægi þess að þetta verði að veruleika er mjög mikið að mati Snorra Steins Guðjónssonar, landsliðsþjálfara, upp á framþróun til næstu ára. „Ég hef sagt það áður, til að mynda í þessum viðræðum og innan HSÍ. Til þess að þróunin og samkeppnin verði hvað eðlilegust þá þurfum við að fá þessa hluti í gang. Ég geri mér samt manna best grein fyrir því að þetta er bundið af ákveðnum fjárhag og geri mér líka grein fyrir því að fjárhagur HSÍ er ekki eins og best verður á kosið. Á meðan svo er ekki, finnst mér samt mikilvægt að það sé einhvern innan HSÍ sem er samt að velta þessum hlutum fyrir sér. Vera pressa þessa hluti áfram. HSÍ, Jón formaður og Sólveig framkvæmdastjóri fá alveg að finna fyrir því. Þótt ég fái nei einu sinni þá held ég bara áfram. Fyrir mér er hagur handboltans mikilvægastur. Að ég geti verið að berjast fyrir hlutum sem ég tel að þurfi að vera til staðar.“
HSÍ Landslið karla í handbolta Handbolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni KA - Afturelding | Þurfa sigur til að halda í við toppliðið Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira