Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. apríl 2026 06:35 Trump virðist í vígahug, gegn bandamönnum Bandaríkjanna. AP/Julia Demaree Nikhinson Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stjórnvöld vestanhafs vera að skoða að fækka bandarískum hermönnum í Þýskalandi. Ákvörðunar sé að vænta á næstunni. Þetta kemur fram í færslu sem forsetinn birti á Truth Social seint í gærkvöldi.
Trump hefur farið mikinn gegn Atlantshafsbandalaginu vegna tregðu Evrópuríkjanna við að koma Bandaríkjunum til aðstoðar í stríði þeirra gegn Íran. Rétt er að geta þess að Trump ráðfærði sig ekki við bandamenn áður en aðgerðir hófust né virðist hann vilja horfast í augu við að Nató er varnarbandalag. Forsetinn hefur undanfarið haft í hótunum við Evrópuríkin undir rós vegna meintra svika þeirra en leiða má líkur að því að færslu forsetans á Truth Social megi rekja til ummæla Friedrich Merz, kanslara Þýskalands, sem sagði í vikunni að forysta Íran hefði „niðurlægt“ Bandaríkjamenn og væru að spila með þá. Fyrstu viðbrögð Trump voru að ásaka Merz um að hafa ekki vit á því sem hann væri að tala um. Þá sagði hann að Merz þætti greinilega í fínu lagi að Íranir eignuðust kjarnavopn. Þetta er lína sem Trump hefur áður kastað fram í reiði sinni, meðal annars gegn Leó páfa. Forsetinn sagði í byrjun aprílmánaðar að ráðmenn vestanhafs væru að íhuga það í fullri alvöru að draga Bandaríkin úr Nató vegna afstöðu bandamanna gagnvart hernaðaraðgerðunum gegn Íran. Til þess mun þó varla koma, þar sem lög sem samþykkt voru árið 2024 kveða á um að aðeins þingið eða tveir þriðjuhlutar öldungadeildarinnar geti tekið ákvörðun þar um. Trump getur hins vegar gripið til aðgerða á borð við að fækka í herafla Bandaríkjanna í Evrópu, sem telur nú um 68 þúsund manns. Þar af eru yfir 35.000 staðsettir í Þýskalandi.
Bandaríkin Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Þýskaland Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Erlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Sjá meira