Hverskonar borg viljum við? Bolli Héðinsson skrifar 27. apríl 2026 11:17 Það er ekki tilviljun heldur meðvituð ákvörðun sem veldur því að Reykjavík hefur breyst frá því að vera hús á stangli í alvöru borg. Þetta hefur gerst á miklu styttri tíma en fólk gerir sér grein fyrir og sú þróun tók kipp fyrir um 30 árum. Meðal þess sem gerir bæ að borg eru fjölbýlishús staðsett inni í borginni en ekki í úthverfum þar sem túnin sem húsunum fylgja eru svo stór að þar mætti stunda heyskap. Með tilkomu borgarhúsanna hefur ásókn í að búa miðsvæðis aukist til muna og blokkaríbúð í miðborg er orðinn valkostur fyrir marga í staðinn fyrir fjölbýlishús í úthverfum með kostum þeirra og göllum. Reykjavík, eða a.m.k. miðsvæði hennar, er sá staður sem flestir sækja til vinnu að morgni og snúa þaðan síðdegis svo umferðarþunginn er mikill. Spurningin er hvernig á að koma öllu þessu fólki á milli staða því fjöldinn á bara eftir að aukast. Í borgarstjórnarkosningunum eru í framboði flokkar sem boða breikkun gatna og lagningu nýrra vega til að bregðast við umferðarþunganum líkt og vegirnir kosti lítið og taki óverulegt pláss. Ef sú leið yrði farin þá einfaldlega endum við í sama farinu og fjöldi annarra borga, einkum í Bandaríkjunum, með vegi og hraðbrautir sem skera mundu borgina á viðkvæmustu stöðum. „Hinn íslenski úrtölumaður“ Það er til fólk sem ekur um á 20 millj. kr. jeppa en tímir samt ekki að fara í bílakjallara. Það bölsóttast yfir gangstéttum og hjólastígum og að geta ekki lagt hvar sem því þóknast. Þetta sama fólk hefur allt á hornum sér þegar talið berst að almenningssamgöngum jafnvel þó þær geri ekki annað en greiða þeim leið þó þau muni aldrei nota þær sjálf. Fyrir rúmum 40 árum var ákveðið að byggja nýja flugstöð á Keflavíkurflugvelli. Bandaríkjamenn komu með tillögur að flugstöð sem gerði ráð fyrir að farþegafjöldinn um stöðina ætti eftir að aukast. Þá brást við „hinn íslenski úrtölumaður“ í öllu sínu veldi og krafðist þess að flugstöðin yrði minnkuð. Það varð úr og við þekkjum öll á hverju hefur gengið á síðan með stöðugum viðbyggingum og reddingum. Hinn íslenski úrtölumaður fer nú mikinn þegar á að færa almenningssamgöngur í það horf sem þekkist í nágrannalöndum okkar. Allt of mikið og allt of dýrt segir úrtölumaðurinn þó svo ríki og sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins hafi öll lokið upp einum rómi og samþykkt að fara í gagngera endurgerð almenningssamgangna. Úrtölumaðurinn er samur við sig og áttar sig ekki á að það eru hagsmunir hans og jeppans að sem flestir noti almenningssamgöngur. - Ætlum við að láta þetta eftir úrtölumanninum? Úrtölumaðurinn er í framboði í nokkrum flokkum, viljum við svona borg eins og úrtölumaðurinn boðar? Höfundur er hagfræðingur og stuðningsmaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bolli Héðinsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar