„Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 23. apríl 2026 22:26 Tryggvi Hrafn var með tvær stoðsendingar hjá Val í kvöld. Guðmundur Þórlaugarson Valur rassskellti FH með þremur mörkum í fyrri hálfleik í þriðju umferð Bestu deild karla í kvöld. Tryggvi Hrafn Haraldsson var með tvær stoðsendingar en var samt sem áður svekktur með framlag sitt í leiknum. „
Þetta var flottur sigur. Bara öruggur 3-0 sigur. Við vorum mjög sterkir í fyrri og skorum þrjú mörk. Þau eiga að vera fleiri. Við eigum að ganga gjörsamlega frá þeim,“ segir Tryggvi Hrafn Haraldsson í samtali við Sýn Sport eftir 3-0 sigur Vals á FH í þriðju umferð Bestu deildar karla á N1 vellinum á Hlíðarenda í kvöld. Öll þrjú mörkin komu í fyrri hálfleik og lagði Tryggvi Hrafn upp tvö þeirra auk þess að komast nokkrum sinnum nálægt því að skora sjálfur. Síðari hálfleikurinn var öllu rólegri. „Svo slökum við vel á í seinni sem við viljum ekki að gerist en það á það til að gerast. Sérstaklega þegar það er svona stutt á milli leikja. Þá kannski reyna menn mögulega að komast upp með minna og klára leikinn.“ „Mér fannst við gera það allt í lagi. Þeir halda meira í boltann án þess að fá nein færi þannig séð. Við fáum skyndisóknir á móti. Þetta var nokkuð sanngjarnt,“ segir hann einnig. Staðan var orðin 2-0 eftir aðeins 14 mínútna leik og segir Tryggvi Hrafn að það hafi verið með ráðum gert að koma af fullum krafti inn í leikinn. „Já, við viljum náttúrlega fara inn í leikina með hátt orkustig, pressa og reyna að spila ágætis bolta. Mér fannst við gera það mjög vel í fyrri. Við vorum að vinna boltann mjög fljótt af þeim aftur þegar við töpuðum honum og vorum með fulla stjórn í fyrri hálfleik. „Í rauninni gengum við frá leiknum þá. Eins og ég sagði áðan eigum við að skora fleiri mörk í fyrri. Heilt yfir var þetta nokkuð góð frammistaða.“ Tryggvi Hrafn átti afar góðan leik í kvöld en viðurkennir fúslega að vera óánægður með sjálfan sig þar sem hann hafi ekki sjálfur náð að skora. „Ég verð að viðurkenna að ég er drullusvekktur með mig sjálfan. Ég fer illa með þrjú góð færi í fyrri hálfleik. Ég verð að gera betur í þeim stöðum.“ „Jú, ég fæ tvær góðar stoðsendingar eftir föst leikatriði sem maður býr yfir líka. Það er gott að koma að mörkum en ég er svekktur með að hafa ekki komist sjálfur á blað líka.“ Er þetta það sem koma skal hjá Valsmönnum í sumar? „Já, ég vona það. Við leggjum upp með að fara inn í alla leiki til þess að vinna þá. Spila á háu tempói og vera orkumiklir þannig að já, ég vona að fólk fái að sjá meira af því,“ segir Tryggvi Hrafn Haraldsson.
Valur Besta deild karla Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira