Sport

„Ég er með full­komnunar­á­ráttu“

Andri Már Eggertsson skrifar
Jamil Abiad, þjálfari Vals, á hliðarlínunni í kvöld
Jamil Abiad, þjálfari Vals, á hliðarlínunni í kvöld Vísir/Pawel

Valur vann sautján stiga sigur gegn Keflavík 87-70. Þrátt fyrir sannfærandi sigur voru þó nokkrir hlutir sem hefðu mátt ganga betur samkvæmt Jamil Abiad, þjálfara Vals.

„Þið þekkið mig og ég er með fullkomnunaráráttu og mér fannst við gera þó nokkur mistök. Ég var ánægður með það sem stelpurnar lögðu í leikinn. Orkan var góð og í seinni hálfleik spiluðum við betri vörn,“ sagði Jamil eftir leik.

Jamil var ekkert svakalega sáttur með fyrri hálfleik liðsins en Valur var fjórum stigum yfir í hálfleik 40-36.

„Við vorum einhverjum þrettán stigum yfir á tímabili en svo gáfum við forskotið frá okkur. Við vorum að tapa boltanum mikið og ef við förum að passa betur upp á boltann þá verðum við betra lið.“

Aðspurður út í þriðja leikhluta sem Valur vann 21-12 var Jamil ánægður með varnarleik liðsins.

„Það var mikil orka í okkur í þriðja leikhluta og stelpurnar urðu harðari og ég var ánægður með hvernig liðið kom út í seinni hálfleik.“

Valur fékk ekki stig af bekknum og Jamil viðurkenndi að það hafi verið vonbrigði.

„Þær sem voru á bekknum spiluðu ekki það mikið. Ég hef verið að segja byrjunarliðinu að það er þeirra starf að koma varamönnunum inn á með því að spila vel og þá fá fleiri stelpur tækifæri,“ sagði Jamil að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×