Innlent

Flug­vél lenti í hvolfi í Mos­fells­bæ

Jón Þór Stefánsson skrifar
Enginn slasaðist.
Enginn slasaðist. Aðsend

Lítil flugvél endaði á hvolfi við lendingu við Tungubakka í Mosfellsbæ í kvöld. Einn flugmaður var í vélinni sem slapp óslasaður.

Atvikið átti sér stað um sexleytið í kvöld. Sjúkrabíll og einn dælubíll frá slökkviliðinu voru sendir á vettvang, að sögn Ásgeirs Halldórssonar aðstoðarvarðstjóra.

Slökkviliðið hjálpaði að endingu við að rétta vélina við, en hvert ástand hennar er liggur ekki fyrir að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×