Körfubolti

Kefla­vík hefur ekki unnið odda­leik í fimm­tán ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jaka Brodnik var með Keflavík í síðasta oddaleik liðsins sem var í undanúrslitunum 2024.
Jaka Brodnik var með Keflavík í síðasta oddaleik liðsins sem var í undanúrslitunum 2024. Vísir/Vilhlem

Karlalið Keflavíkur er komið í oddaleik í einvígi sínu á móti Val í átta liða úrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta. Keflvíkingar hafa fallið á öllum slíkum prófum undanfarin fimmtán ár.

Keflvíkingar hafa ekki unnið oddaleik í úrslitakeppni karla síðan þeir unnu oddaleik á móti ÍR í átta liða úrslitum vorið 2011. Sá leikur fór fram 23. mars 2011 eða fyrir næstum því 181 mánuði síðan.

Keflavík var þá á heimavelli og vann fimm stiga sigur í framlengingu, 95-90, eftir að hafa verið níu stigum undir fyrir lokaleikhlutann, 56-65.

Sigurður Gunnar Þorsteinsson skoraði 26 stig í leiknum og Andrija Ciric var með 21 stig. Bandaríkjamaðurinn Thomas Sanders skoraði 15 stig, tók 9 fráköst og stal 6 boltum. Hörður Axel Vilhjálmsson lék þarna með Keflavík og bauð upp á 11 stig, 5 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta.

Síðustu sjö oddaleikir Keflvíkinga hafa hins vegar allir tapast en þeir hafa allir verið á útivelli eins og leikurinn í kvöld.

Valsmenn, mótherjar Keflavíkur í kvöld, hafa aftur á móti spilað sex oddaleiki síðustu fimm tímabil og unnið fjóra þeirra eða 67 prósent leikjanna. Sagan er því með Hlíðarendaliðinu í kvöld.

Valur er samanlagt með sjö sigra og sex töp í þrettán oddaleikjum félagsins í úrslitakeppni karla en Keflvíkingar eru samanlagt með sextán sigra og sautján töp í 33 oddaleikjum sínum í sögunni.

  • Síðustu sjö oddaleikir Keflavíkur hafa allir tapast:
  • Undanúrslit 2024: 49 stig tap fyrir Grindavík (63-112)
  • Átta liða úrslit 2022: 14 stig tap fyrir Tindastól (85-99)
  • Átta liða úrslit 2018: 6 stig tap fyrir Haukum (66-72)
  • Átta liða úrslit 2015: 17 stig tap fyrir Haukum (79-96)
  • Átta liða úrslit 2013: 5 stig tap fyrir Stjörnunni (77-82)
  • Átta liða úrslit 2012: 7 stig tap fyrir Stjörnunni (87-94)
  • Undanúrslitin 2011: 16 stig tap fyrir KR (89-105)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×