Janus Daði klúðraði örlagavíti í undanúrslitum Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. apríl 2026 15:00 Landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason mun ekki kveðja Pick Szeged sem bikarmeistari. Vísir/Vilhelm Janus Daði Smárason reyndist örlagavaldurinn þegar Pick Szeged féll úr leik í vítakeppni gegn Veszprém í undanúrslitum ungversku bikarkeppninnar í handbolta.
Leikurinn var æsispennandi frá upphafi til enda og liðin skildu jöfn eftir venjulegan leiktíma. Pick Szeged var þó skrefinu á undan og tók reglulega í gegnum allan leikinn tveggja marka forystu, en alltaf svaraði Veszprém og leikurinn endaði með 29-29 jafntefli. Stórleikur hjá Bjarka Má Bjarki Már átti stórleik og skoraði níu mörk, þar af fimm úr vítaköstum. Mario Sostaric var hins vegar markahæstur allra, með tíu mörk fyrir Pick Szeged. Janus Daði skoraði þrjú mörk fyrir Pick Szeged en átti svo eftir að reynast skúrkurinn í vítakeppninni. Stress í fyrstu köstum hjá báðum liðum Í vítakeppninni var greinilegt hversu mikið væri undir hjá ungversku stórliðunum tveimur. Hugo Descat klúðraði fyrsta víti Veszprém og Mario Sostaric klúðraði fyrsta víti Pick. Bjarki Már skoraði svo úr næsta víti Veszprém og bæði lið skoruðu úr sínum næstu skotum, þar til staðan stóð 33-32 í bráðabana og komið var að Janusi Daða. Appelgren varði vítið hjá Janusi Janus þurfti að skora til að jafna og halda bráðabananum áfram en Mikael Appelgren varði vítið og tryggði Veszprém áfram í úrslitaleikinn. Verður Veszprém bikarmeistari í 32. sinn í sögunni? Veszprém mun mæta annað hvort Neka eða Tatabánya í úrslitaleiknum en þeirra leikur fer fram síðdegis í dag. Reikna má með sigri Veszprém þar en liðið hefur orðið bikarmeistari oftast allra liða og nánast á hverju einasta ári á þessari öld, fyrir utan þau fáu skipti sem Pick Szeged hefur unnið.
Ungverski handboltinn Handbolti Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira