Kennarasambandið mismunaði konu Agnar Már Másson skrifar 16. apríl 2026 21:55 Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands. Kennarasamband Íslands mismunaði starfsmanni á grundvelli kyns þegar stjórn sambandsins neitaði að leiðrétta laun konu í samræmi við laun karls sem vann við svipað starf hjá aðildarfélagi Kennarasambandsins.
Kærunefnd jafnréttismála kvað upp úrskurð þessa efnis 25. mars en hann birtist nýlega á vef stjórnvalda. Konan hóf störf hjá Kennarasambandinu (KÍ) haustið 2021, um sex mánuðum á eftir karlkyns starfsmanni sem gegndi þar svipuðu starfi á sama tíma. Við upphaf ráðningartímabilsins voru laun þeirra jöfn en um vorið 2022 gerði eitt aðildarfélaga KÍ nýjan ráðningarsamning við karlinn sem jafngilti um 200 þúsund króna launahækkun, samkvæmt úrskurði. Formaður aðildarfélagsins, en ekki formaður KÍ, skrifaði undir samninginn við karlinn. Haustið 2023 kom konan að máli við formann KÍ, Magnús Þór Jónsson, sem er enn formaður í dag, til þess að biðja um launaleiðréttingu. Sambandið hafnaði því á þeim rökum að það hefði sjálft ekki gert samninginn við karlinn, heldur aðildarfélagið. Þetta kærði konan til kærunefndar jafnréttismála árið 2024 og hefur nefndin nú úrskurðað í málinu. Vildu forðast klofning innan sambandsins Konan benti nefndinni á að störf hennar og karlsins væru sambærileg – hún hefði jafnvel gegnt víðara hlutverki en karlinn og sinnt störfum fyrir öll aðildarfélög KÍ – og að laun þeirra beggja hefðu sameiginlega uppsprettu hjá KÍ, burtséð frá því hvort hann starfaði fyrir aðildarfélag sambandsins. Þá benti hún á að KÍ hefði þegið samninginn við karlinn athugasemdalaust og greitt honum samkvæmt samningi í marga mánuði. Þá segir í rökstuðningi Kennarasambandsins að skrifstofustjóri og formaður KÍ hafi haft vitneskju um samninginn en ekki gert athugasemdir til að forðast klofning innan sambandsins. Fyrir nefnd benti KÍ enn fremur á að það hefði ekki forráð yfir fjárveitingum einstakra aðildarfélaga og að KÍ hefði gætt jafnræðis við gerð eigin ráðningarsamninga. KÍ bar sönnunarbyrðina Kærunefndin féllst á að konan hefði leitt nægar líkur að launamismunun á grundvelli kyns og þess vegna bæri KÍ sönnunarbyrðina um að munurinn skýrðist af öðrum þáttum en kyni. KÍ lagði heldur ekki fram hlutlæg gögn sem skýrðu launamuninn og gat því ekki losað sig undan ábyrgð. Nefndin vísaði til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna sem kveða á um að ekki sé skilyrði að starfsfólk hafi sama vinnuveitanda í formlegum skilningi, heldur nægi að rekja megi launamun til sameiginlegrar uppsprettu sem hefur vald til að leiðrétta misréttið. KÍ taldist slík uppspretta þar sem það hafði yfirumsjón með launagreiðslum allra, þar á meðal karlsins.
Jafnréttismál Skóla- og menntamál Kjaramál Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Fleiri fréttir Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Sjá meira