Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. apríl 2026 10:33 Hagar boða nýtt samstarf. Vísir/Vilhelm Hagar eru komnir í innkaupasasamstarf við danska smásölufyrirtækið Salling Group, sem er stærsti aðilinn á dagvörumarkaði í Danmörku. Samstarfið með Salling Group býður upp á fjölda tækifæra og gerir Högum kleift að bjóða landsmönnum upp á lægra verð, aukið vöruúrval, og enn betri gæði en fyrr í verslunum félagsins, að því er fullyrt í tilkynningu frá félaginu.
Þar segir að með samstarfinu fái verslanir Bónus og Hagkaups meðal annars aðgang að breiðu vöruúrvali Salling Group, félagið reki yfir 2.100 verslanir í Danmörku, Þýskalandi, Póllandi og Eystrasaltslöndunum. Á heimamarkaði Salling í Danmörku reki félagið þekktar verslunarkeðjur, svo sem Netto, føtex og Bilka, auk þess að reka Netto víðar í Evrópu og Rimi í Eystrasaltslöndunum. „Fyrstu vörurnar eru nú þegar komnar í hillur hjá Bónus og Hagkaup, en úrvalið mun stækka ört á næstu mánuðum og verða fleiri en þúsund vörunúmer í boði innan nokkurra mánaða. Vörurnar sem um ræðir eru meðal annars undir merkjum á borð við Salling, ØKO, FRI, Princip og Budget - vörulínur sem eru þekktar fyrir gott verð, fjölbreytt úrval, og mikil gæði,“ segir meðal annars í tilkynningunni. Þar segir ennfremur að fjöldinn allur af vörum Salling beri viðurkenndar gæðavottanir og næringarmerkingar sem þekkjast vel á Norðurlöndunum, svo sem Lykillinn, Ø-merkið fyrir lífræna vottun og norræna umhverfismerkið Svanurinn. Samstarfið veiti verslunum Haga undir merkjum Bónus, Hagkaups og Olís, aðgang að nýju og fjölbreyttu úrvali af vörum sem hafi notið mikillar vinsælda í nágrannalöndum og bætir innkaupsverð félagsins í fjölda vöruflokka. Markmið Haga sé að nýta þennan ávinning til að bjóða enn betri verð í verslunum félagsins, sem og að auka vöruúrval og gæði. „Það hefur ávallt verið keppikefli okkar að ná árangri í innkaupum og tryggja þannig viðskiptavinum sem allra best vöruverð. Samstarf okkar við Salling er stærsta skref sem við höfum stigið á þessu sviði í áratugi og markar þáttaskil í matvöruverslun á Íslandi. Salling hefur ákveðna yfirburði á danska markaðnum, hvað varðar stærð, innkaupagetu og fjölbreytni vörulína, en samstarfið veitir okkur aðgang að fjölbreyttu vöruúrvali sem þekkist víða í Evrópu. Fyrir neytendur á Íslandi þýðir þetta annars vegar lægra verð á hundruðum vara og hins vegar aukið úrval af vörum af miklum gæðum. Við erum stolt af því að geta lagt okkar enn frekar af mörkum í baráttunni við verðbólguna, sem hefur sjaldan verið mikilvægara en nú,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga. „Við erum afar ánægð með samstarfið við Haga og sjáum í því mikil tækifæri. Hagar eru, líkt og Salling Group, leiðandi fyrirtæki á sínum markaði og leggja ríka áherslu á að bjóða viðskiptavinum sínum fjölbreytt vöruúrval og samkeppnishæf verð. Ég vil þakka Högum það traust sem þau sýna okkur og legg áherslu á að við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að standa undir því, til hagsbóta fyrir neytendur á Íslandi,“ segir Anders Hagh, forstjóri Salling Group.
Neytendur Verslun Matvöruverslun Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Ekki hægt að fá bílastæði án bókunar Staðfesta ákvörðun um bann við fullyrðingum um bestu pakkaferðirnar Innkalla hafragraut vegna mögulegs aðskotahlutar Innkalla kerti vegna eldhættu Galli í hugbúnaði leiddi til rangra greiðsluseðla Ekkert til í því að enginn rjómi sé í Rjómaísnum Bankarnir byrjaðir að hækka vexti Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Hætta að taka við rúmfreku rusli á tveimur stöðvum Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Innkalla Íslandsnaut hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Sjá meira