Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 15. apríl 2026 12:00 Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur segir óljóst hvernig eigi að koma unnum kjötvörum úr skólum í Reykjavík. vísir Næringarfræðingur fagnar viðleitni borgarstjórnar sem hyggst úthýsa unninni kjötvöru úr skólum borgarinnar. Hún segir verkefnið hins vegar algjörlega óútfært og telur það í raun óframkvæmanlegt í náinni framtíð. Mikill meirihluti kjötrétta í skólum sé unnin matvara.
Ný matarstefna Reykjavíkurborgar var samþykkt í borgarstjórn í gær en samkvæmt henni eiga unnar kjötvörur að falla út af matseðli sem aðalmáltíð í grunn- og leikskólum borgarinnar. Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur hefur á síðustu árum kynnt sér næringargildi matarins sem boðið er upp á og hún segir unnin matvæli stóran hluta þess. „Það sem er kannski verra er að það er gjörunninn matur. Og við erum líka með unnin kolvetni, eða fín kolvetni sem hafa áhrif á blóðsykurinn hjá börnum. Þannig það er margt að skoða í skólamötuneytum landsins, því miður,“ segir Elísabet. Dæmin á matseðli séu fjölmörg. „Unnar kjötvörur þarna eru til dæmis pyslur, bjúgur og snitsel. Það koma alls konar réttir sem eru tilbúnir í ofninn og það er gjörunnið. Ég hugsa að svona áttatíu prósent af kjötréttum í skólamötuneytum séu unnin matvara.“ Í flestum leik- og grunnskólum Reykjavíkur er fyrirkomulagið þannig að matreiðslu er útvistað og skipta fyrirtækin Skólamatur og Matartíminn markaðnum nokkurn veginn á milli sín. Aðgerðaráætlun skorti Elísabet bendir á að samningar séu almennt gerðir nokkur ár fram í tímann og hún segir óljóst hvernig eigi að breyta matseðlum á grunni þeirra í náinni framtíð. Aðgerðaáætlun skorti til þess að markmiðið teljist raunhæft. Skilgreina þurfi hvað teljist til unninna kjötvara og skoða kostnað. Hreint kjöt og hreinn fiskur séu dýrari vörur. „Ég veit ekki hvort Reykjavíkurborg ætli þá að hækka verðið til þeirra sem eru með skólamötuneytin. Ég tel að það þurfi að fara í miklu alvarlegri aðgerðir með skólamötuneytin og að það þurfi í fyrsta lagi að gera sameiginlegan matseðil fyrir skóla Reykjavíkur og fara yfir það hver kostnaðurinn yrði við að fara í hreinan mat. Svo getum við farið í útboð, Mér finnst þetta pínulítið bara eins og orð út í loftið um eitthvað sem gæti verið geggjað en er ekki framkvæmanlegt,“ segir Elísabet
Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Reykjavík Borgarstjórn Matur Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira