36 stunda vinnuvika, leikskólar og komandi kjarasamningar Guðmundur D. Haraldsson skrifar 13. apríl 2026 09:15 Frá upphafi áratugarins hafa átt sér stað mikilvægar framfarir á íslenskum vinnumarkaði hvað varðar vinnutíma. Þessar framfarir eru sýnilegastar á opinbera markaðnum þar sem 36 stunda vinnuvika er nú orðin útbreidd eftir sögulega kjarasamninga árið 2020 og endurnýjun þeirra árið 2024. Þessir kjarasamningar urðu mögulegir í kjölfar vel heppnaðara tilraunaverkefna um styttri vinnuviku hjá Reykjavíkurborg og ríkinu sem stóðu frá 2015 til 2020, en það voru stéttarfélög opinberra starfsmanna og sambönd þeirra sem hvöttu til þeirra og stóðu að þeim í samvinnu við ríki og borg. Þessi tilraunaverkefni voru þau stærstu af sínu tagi í Evrópu á sínum tíma og vöktu athygli utan landsteinana. Stytting vinnuvikunnar er raunveruleg og hún hefur haft jákvæð áhrif í samfélaginu: Tölur Hagstofunar sýna að vinnustundum á Íslandi fækkaði um þrjár stundir á viku, að meðaltali, hjá vinnandi fólki á árabilinu 2019 til 2024. Þetta telst vera áfangi, ekki síst í því ljósi að aðeins hluta launþega hefur verið boðin stytting á vinnuvikunni (meira um það síðar). Þá gefa rannsóknir á styttingu vinnuvikunnar hér á Íslandi (og tilraunaverkefnum erlendis) til kynna að þau sem hafa fengið að stytta vinnutíma sinn upplifi bætt jafnvægi vinnu og einkalífs, minni streitu og þá eru vísbendingar um að ánægja hafi aukist með vinnutímann eftir styttinguna. Þetta er allt mikilvægt, sérstaklega vegna þess að jafnvægi vinnu og einkalífs hefur verið lakt á Íslandi og að streita í samfélaginu er mikil. Loks hefur framleiðni vinnuafls aukist mest á Íslandi af öllum Norðurlöndunum sem er ólíkt fortíðinni, þar sem Ísland var iðulega eftirbátur, og má mögulega tengja þetta við breytingar á vinnuskipulagi í kjölfar styttingarinnar. Framfarir eru þannig greinilegar. Þessar framfarir hafa að mestu verið leiddar af opinbera geiranum og stéttarfélögum opinberra starfsmanna. Í einkageiranum hefur minna gerst og gera þannig kjarasamningar flestra stéttarfélaga í einkageiranum enn ráð fyrir 40 stunda viðveru á viku. Undantekningar eru á þessu, m.a. samdi VR um vinnutímastyttingu en sú var mjög hófleg. Kjarasamningar Eflingar – stéttarfélags hljóða upp á 40 stunda vinnuviku. Margir kjarasamningar í einkageiranum gera ráð fyrir vinnustaðasamningum þar sem má stytta vinnutímann, en lítil hefð er fyrir slíkum samningum á Íslandi. Heilt yfir hefur einkageirinn setið eftir, ekki fylgt jákvæðu fordæmi opinbera geirans og ekki lært af opinbera geiranum. Ekki hefur verið ráðist í framleiðniumbætur í einkageiranum. Einkageirinn er mjög stórt hlutfall af íslenskum vinnumarkaði, meira en helmingurinn af launþegum. Einkageirinn hefur setið eftir aðallega vegna mikillar andspyrnu Samtaka atvinnulífsins gagnvart vinnutímastyttingu, sem beittu sér mjög ásamt systursamtökum þeirra, Viðskiptaráði Íslands, en andspyrnan var mjög greinileg í aðdraganda kjarasamninga árið 2019/2020. Vegna þessa hefur nú skapast misræmi á íslenskum vinnumarkaði þar sem umsaminn vinnutími í einkageiranum er mun lengri en í opinbera geiranum. Þetta misræmi hefur afleiðingar fyrir samfélagið okkar. Misræmi vinnutíma og leikskólar Mjög greinileg birtingarmynd þessa misræmis er í rekstri leikskóla. Flestir starfsmenn leikskóla falla undir opinbera kjarasamninga eða hliðstæða samninga, og eiga þannig rétt á 36 stunda vinnuviku. En þjónustutími skólanna er lengri, í kringum 44-45 tímar á viku. Þetta skapar þörf fyrir aukna mönnun, sem hefur reynst erfitt að leysa, og þó voru erfiðleikar fyrir eins og þrengsli, mannekla og tíðari veikindi en víða annars staðar. Ýmsum hugmyndum hefur verið fleytt sem eiga að leysa vanda leikskóla, eins og að verja meiru fé til þeirra, lengja fæðingarorlof eða þá hreinlega skerða þjónustuna. Allt miðar þetta að því að draga úr álaginu á leikskólum. Sveitarfélögin hafa eitt af öðru – nú nýlega Reykjavíkurborg – ákveðið að setja upp hvatakerfi þannig að foreldrar borgi meira fyrir lengri vistunartíma barna sinna, en með innbyggðum afslætti fyrir tekjulægri og einstæða foreldra. Yfirlýst markmið, í sumum tilfellum, er að stytta vistunartímann í að meðaltali 38 tíma – en alltaf að draga úr álaginu á starfsfólk leikskólanna. Sum sveitarfélög veita gjaldfrjálsa vistun barna í allt að 36 tíma, líkt og Reykjavíkurborg mun gera. Gallinn við þetta fyrirkomulag er að fólk með sveigjanlegan eða styttan vinnutíma mun geta nýtt sér þessa breytingu og greitt lægri/engin leikskólagjöld, á meðan fólk með ósveigjanlegan eða langan vinnutíma mun þurfa að greiða meira en aðrir. Í öllu falli mun fyrirkomulagið auka á ójöfnuð í samfélaginu. Líklega er rétt fyrir samfélagið að reyna að draga úr álagi á leikskólum, enda er vistunartími á leikskólum á Íslandi langur í alþjóðlegu samhengi – sem að einhverju leyti speglar líka lengd vinnuvikunnar í landinu og mikla atvinnuþátttöku (vinnuvikan er skemmri í flestum hinum Norrænu ríkjunum). En slíkt má alls ekki auka á ójöfnuð, enda eiga leikskólar að auka jöfnuð í samfélaginu. Rökrétt framhald fyrir íslenskt samfélag, með tilliti til þess sem sveitarfélögin hafa verið að gera, og í ljósi þess að opinbera geiranum hefur gengið vel að innleiða styttingu hjá sér, er að einkageirinn fylgi á eftir og vinnutími á einkamarkaði verði styttur í 36 stundir.Jafnframt þurfa sveitarfélögin að setja meira fé í leikskólamálin til að bæta stöðuna til frambúðar. Þetta tvennt, í sameiningu, myndi hafa jákvæð áhrif á samfélagið, vinnandi fólk (í einkageiranum einkum), og leikskólana og starfsfólk þeirra: Álag á leikskólum myndi minnka, jafnvægi vinnu og einkalífs hjá fólki á einkamarkaði myndi batna og misræmið á vinnumarkaðnum myndi hverfa. Áhrif á börn yrðu líka jákvæð með meiri tíma með foreldrum og fjölskyldunni. Þetta myndi einnig þýða að einkafyrirtæki þurfa að endurskoða fyrirkomulag vinnunnar og starfshætti, sem getur hæglega aukið framleiðni vinnuafls og hagkerfisins alls. Það er þannig til mikils að vinna. Kjarasamningar eru næst lausir á fyrrihluta árs 2028. Þá gefst tækifæri fyrir stéttarfélög í einkageiranum til að semja um vinnutímastyttingu þannig að vinnutími í einkageiranum verði til jafns á við opinbera geirann. Atvinnurekendum gefst í kjölfarið tækifæri til að auka framleiðni fyrirtækja sinna og nýta þannig til fulls tækniframfarir síðustu ára og áratuga. Mjög mikilvægt er að stéttarfélögin verði samstíga og samrýmd í sínum kröfum gagnvart atvinnurekendum um kröfur sínar um 36 stunda vinnuviku. Samningar um 36 stunda vinnuviku myndu þýða að áfram yrði byggt á þeirri jákvæðu reynslu sem hefur orðið varðandi vinnutímann á Íslandi. Atvinnurekendur þurfa að taka þátt í jákvæðri framþróun samfélagsins með launþegahreyfingunni. Höfundur er stjórnarmaður í Öldu – félagi um sjálfbærni og lýðræði. Heimildir 1. Alda og Autonomy (2024). On Firmer Ground: Iceland’s Ongoing Experience of Shorter Working Weeks.https://en.alda.is/2024/10/25/on-firmer-ground-icelands-ongoing-experience-of-shorter-working-weeks/ 2. Hagstofa Íslands (e.d.). Meðalfjöldi unnina og venjulegra vinnustunda eftir árum, 2003-2025. https://px.hagstofa.is:443/pxis/sq/75eb68eb-a204-46f8-bd14-1fdcd9a1a868 3. Sameyki (7. desember 2022). Þróun fjölda opinberra starfsmanna stendur í stað. 4. Alda og Autonomy (2021). Going Public: Iceland’s Journey to a Shorter Working Week.https://en.alda.is/2021/07/04/going-public-icelands-journey-to-a-shorter-working-week/ 5. Autonomy Institute (21. febrúar 2024). Making It Stick: The UK Four-Day Week Pilot One Year On.https://autonomy.work/portfolio/making-it-stick 6. Eurostat (e.d.). Average usual weekly hours worked in the main job by professional status, full-time/part-time employment and occupation. https://ec.europa.eu/eurostat/databrowser/view/lfsa_ewhuis/default/table?lang=en Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur D. Haraldsson Leikskólar Mest lesið Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun Verkalýðsfélög í faðmi hins opinbera Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir Skoðun Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir Skoðun „Ég var nú bara að grínast!“ Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Miðflokkarnir tveir í Kópavogi Pétur Björgvin Sveinsson Skoðun Hætta á ferðum í fjölmiðlun á Íslandi Stefán Jón Hafstein Skoðun Viltu borga meira fyrir að leggja bílnum þínum í bílastæðahúsi? Regína Ásvaldsdóttir Skoðun Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson Skoðun Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tækifæri í stað takmarkana! Bergljót Borg skrifar Skoðun Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson skrifar Skoðun Aðdáunarverð þrautseigja Grindvíkinga Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Veistu á hvaða lyfjum þú ert? Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar Skoðun Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Viltu borga meira fyrir að leggja bílnum þínum í bílastæðahúsi? Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Réttindabarátta fatlaðs fólks í 65 ár Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Þegar áframhald verður bakslag Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sjálfstætt líf og fimm spurningar sem skipta öllu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samvinnuhugsjón í leikskólamálum Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun „Ég var nú bara að grínast!“ Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hvernig ræktum við frið í huga fólks? Sæunn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Borgin skapi hlutastörf Stefán Pálsson skrifar Skoðun Gleymum ekki hestamönnum og skátum Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Er gott að eldast á Akranesi? Hugrún Eva Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Eitt samtal getur breytt deginum Alda Björk Harðardóttir skrifar Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason skrifar Skoðun Reykjanesbrautin - við leysum hnútinn Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir skrifar Skoðun Menningin er hjartað í Hafnarfirði Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Lækkun gjalda: skref í rétta átt, en enn langt í land Valborg Ösp Árnadóttir Warén skrifar Skoðun Sveitarfélög á Íslandi og Evrópusambandið Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Gefum sköpunargáfu barna það pláss sem hún á skilið Guðrún Lína Thoroddsen skrifar Skoðun Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Skólaskeyti til Garðbæinga! Harpa Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsfélög í faðmi hins opinbera Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Gæði kennslu: Farsæld sem markmið menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Skoðun Miðflokkarnir tveir í Kópavogi Pétur Björgvin Sveinsson skrifar Sjá meira
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun
Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir Skoðun
Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar
Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason skrifar
Skoðun Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Farsæld sem markmið menntunar Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun
Hvað fá foreldrar í Kópavogi fyrir 450 þúsund króna barnaskatt? Dagbjört Hákonardóttir,Eydís Inga Valsdóttir Skoðun