Rekinn án skýringa og ætlar í mál Sindri Sverrisson skrifar 12. apríl 2026 11:01 Jim Gottfridsson með boltann í tapinu gegn Íslandi á EM í janúar. EPA/Johan Nilsson Sænska handboltastjarnan Jim Gottfridsson er í öngum sínum eftir að hafa verið sparkað frá ungverska félaginu Pick Szeged. Þar ætlaði Svíinn að ljúka glæstum ferli sínum og búa með fjölskyldu sinni í nánustu framtíð.
Gottfridsson var liðsfélagi Janusar Daða Smárasonar í vetur og hafði gert samning við félagið til þriggja ára. Núna hefur hann verið rekinn, án útskýringa, og ætlar að leita réttar síns. Tilkynning Pick Szeged um að samningi Gottfridsson hefði verið rift var afar stutt og varpaði ekki frekara ljósi á málið. Þar sagði þó að hann hefði spilað 31 leik í treyju félagsins og skorað 57 mörk, og var Svíanum þakkað fyrir sín störf. Í yfirlýsingu sinni, sem sjá má hér að neðan, segir Gottfridsson forráðamenn Pick Szeged vera að brjóta harkalega bæði skrifaðar og óskrifaðar reglur handboltans. „Þetta gerðu þeir líka þrátt fyrir að ég hafi barist af öllu hjarta fyrir liðið á hverri einustu æfingu og í hverjum leik. Ég klæddist treyju þessa söguríka félags af allra mestu hollustu og stolti. Hérna vildi ég ljúka ferlinum, ég sá fyrir mér nánustu framtíð mína og fjölskyldunnar í þessum dásamlega bæ, ég hefði helgað félaginu síðustu ár ferilsins. Vonbrigði mín verða ekki sett í orð. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að félag með þennan orðstír myndi fórna öllum siðferðisreglum íþróttanna, af ástæðum sem mér eru ekki kunnar,“ skrifaði Gottfridsson og kvaðst ætla að leita réttar síns svo að enginn handboltamaður myndi þurfa að upplifa það sama í Ungverjalandi í framtíðinni.
Ungverski handboltinn Handbolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir KA - Afturelding | Þurfa sigur til að halda í við toppliðið Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför Sjá meira