„Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Valur Páll Eiríksson skrifar 6. apríl 2026 19:50 Hermann segir úrslitin afrakstur erfiðs vetrar. Vísir/Bjarni 4-2 Tap Valsmanna fyrir KR í Mjólkurbikar karla í dag er afrakstur meiðslahrjáðs vetrar samkvæmt Hermanni Hreiðarssyni, þjálfara Vals. Hann er hundfúll að vera úr leik en segir margt jákvætt í leik sinna manna sem séu skemmra á veg komnir en aðrir.
KR vann leikinn nokkuð afgerandi og sigurinn hefði getað verið stærri en 4-2. Staðan var 2-0 í hálfleik en þá hefði munurinn getað verið stærri. Valsmönnum tókst að minnka muninn í 3-1 áður en KR bætti við fjórða markinu og sárabótamark varð til þess að lokatölur yrðu 4-2. „Þetta er fúlt. Þetta er afrakstur vetrarins. Það eru búin að vera meiðsli í allan vetur og við höfum ekki náð að slípa okkur saman. Það sýndi sig í byrjun þegar við vorum ekki alveg í takti,“ segir Hermann í samtali við Vísi eftir leik og bætir við: „Svo um leið og við breytum aðeins um leikkerfi og náum að klukka þá meira þá er þetta bara jafn leikur. En við höfðum í raun bara þennan eina leik til að slípa okkur saman, það er það súra,“ segir Hermann en Valsmenn hafa glímt við mikil meiðsli í vetur og átt í erfiðleikum með að hreinlega manna æfingar. „Menn eru bara að koma saman hérna í fyrsta skipti í dag. Það er ekki afsökun heldur staðreynd. En svo sýnum við á köflum stórkostlegan fótbolta og ég held að fyrsta markið okkar frábært. Ef það verður skorað fallegra mark í sumar skal ég hundur heita,“ segir Hermann sem sér jákvæða punkta í frammistöðu sinna manna. „Það er margt rosalega jákvætt, við sýndum anda og baráttu. Við gáfumst aldrei upp og í stöðunni 3-1 höldum áfram að ógna þannig að það er rosalega margt jákvætt en það neikvæða er afrakstur vetrarins.“ Valsliðið sé því skemmra á veg komið en keppinautar sínir hvað undirbúningstímabilið varðar. „Alveg 100 prósent, við erum ekki að fara að toppa neitt núna því við höfum ekkert verið saman liðið. Þetta er í fyrsta skipti sem akkúrat þetta lið spilar saman. Við höfum ekki notið þess lúxus,“ segir Hermann. Umdeilt atvik varð í stöðunni 3-1 þegar Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, lenti í samstuði við Valsarann Tryggva Hrafn Haraldsson. Arnar fór í boltann en einnig heldur harkalega á blindu hliðina á Tryggva sem lá óvígur eftir vænt högg. Ekkert var dæmt og leikurinn hélt áfram en Valsmenn vildu aukaspyrnu og jafnvel rautt spjald á Arnar. Hermann fékk gult spjald fyrir mótmæli eftir atvikið. „Ég er ekki búinn að sjá þetta aftur en eins og þetta birtist fyrir mér er þetta bara líkamsárás. Hann straujar hann niður og auðvitað er þetta risaatvik en ég veit ekki nákvæmlega hver snerti boltann eða hvað. Svona atvik geta breytt leikjum en ég hef ekki séð þetta aftur,“ Það hlýtur því að vera sérlega fúlt að fá bikarleik við sterkt KR-lið á þessum tímapunkti fyrst veturinn hefur verið svona strembinn? „Auðvitað er það fúlt. Alveg skítfúlt. En það er heilt Íslandsmót og Evrópukeppni eftir en auðvitað er það skítfúlt að bikarinn sé farinn,“ segir Hermann.
Valur Mjólkurbikar karla Besta deild karla KR Mest lesið Aldrei unnið atvinnumannamót en er efstur fyrir lokahringinn á PGA Golf Dagskráin í dag: Heil umferð í Bestu karla, enski boltinn og ögurstund í Njarðvík Sport „Hafa aldrei séð afa sinn í vafasömu ástandi en gera það í kvöld“ Fótbolti Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Handbolti Dómarinn verið í lögreglufylgd síðan á fimmtudag Fótbolti Bakverðirnir skutu Spurs áfram í úrslit vestursins Körfubolti „Sem hafa enn og aftur dregið skoskan fótbolta niður í svaðið“ Fótbolti Þriðji deildarsigurinn í röð hjá lærisveinum Freys Fótbolti Bríet treður upp á stórleiknum Íslenski boltinn Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Þróttur R. - Breiðablik 3-2 | Þróttarar slógu bikarmeistarana úr leik Dregið í Mjólkurbikarnum: Stjarnan og FH mæta nýliðunum „Þess vegna líður okkur svona vel í Laugardalnum“ Eyjakonur og Austfirðingar flugu áfram í átta liða úrslit Bríet treður upp á stórleiknum Víkingar áfram eftir framlengda spennu Bikarævintýri Reyknesinga og Garðbæinga „Ég tek fulla ábyrgð“ „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum „Tímapunkturinn hefði ekki getað verið mikið verri“ „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Þróttur R. - Breiðablik 1-2 | Tíu Blikar tryggðu sig í átta liða úrslitin „Þetta er allt annað Fram-lið“ „Skagamenn eru bara ennþá að leita að nýju DNA“ Viðar Örn settur í agabann Sjáðu dramatíkina í Kópavoginum og öll mörkin úr Bestu deild kvenna Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ „Ef Örvar hefði látið sig detta hefði þetta verið víti“ Uppgjörið: Þróttur - Grindavík/Njarðvík 1-2 | Nýliðarnir unnu í Laugardalnum Uppgjörið: Fram - Víkingur 0-1 | Víkingssigur í Reykjavíkurslag „Þetta var vont“ „Get ekki sagt að þetta hafi verið sannfærandi sigur“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 3-2 | Ótrúlegur sigur Blika Þegar Martin Eyjólfsson varð Bjargvætturinn Sjáðu mark Hallgríms frá miðju Sjá meira