Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Kjartan Kjartansson skrifar 25. mars 2026 11:44 Viktor Orbán háir harða baráttu til að halda í völdin í Ungverjalandi. Hann hefur beitt sér af aukinni hörku gegn Úkraínu í kosningabaráttunni fyrir kosningar sem fara fram 12. apríl. AP/Geert Vanden Wijngaert Ríkisstjórn Viktors Orbán í Ungverjalandi hefur ákveðið að skrúfa fyrir gasleiðslur til Úkraínu til þess að knýja á um að olíuleiðsla frá Rússlandi verði opnuð aftur. Orbán hefur tekið upp enn harðari stefnu gegn Úkraínu en áður í harðri kosningabaráttu sem hann háir heima fyrir.
Aðgerðir ungverskra stjórnvalda tengjast því að Druzhba-olíuleiðslan frá Rússlandi sem liggur í gegnum Úkraínu hefur verið lokuð í nærri því tvo mánuði og sér ekki fyrir opnun hennar ennþá. Úkraínsk stjórnvöld segja leiðsluna hafa skemmst í drónaárásum Rússa og að þau geti ekki hætt lífum tæknimanna sinna í að reyna sífellt að gera við hana. Bæði Orbán og Robert Fico, starfsbróðir hans í Slóvakíu, hafa sakað Úkraínumenn um að stöðva olíuflutning Rússa viljandi. Þeir fóstbræður eru helstu bandamenn Vladímírs Pútín Rússlandsforseta í Evrópu og fengu undanþágu frá ESB til að halda áfram að flytja inn rússneska olíu þrátt fyrir innrásarstríð Rússa í Úkraínu. Ungverska ríkisstjórnin tilkynnti í dag að gasleiðsla sem sá Úkraínumönnum fyrir um 45 prósentum af öllu því jarðgasi sem þeir fluttu inn í fyrra verði lokuð þar til Druzgba-olíuleiðslan kemst aftur í gagnið. Ungverjar segjast ætla að nota gasið til þess að fylla á eigin forða, að því er kemur fram í frétt AP-fréttastofunnar. Aukin óvild í garð Úkraínu í harðri kosningabaráttu Orbán berst nú fyrir pólitísku lífi sínu í kosningum sem fara fram í næsta mánuði. Útlit er fyrir að hann gæti tapað fyrir miðhægriflokki Peters Magyar. Forsætisráðherrann hefur brugðist við andbyrnum með því að herða enn á andstöðu sinni við Úkraínu. Lýsti hann Úkraínu meðal annars sem óvini Ungverjalands. Ungverski forsætisráðherrann kom í veg fyrir að Evrópusambandið samþykkti níutíu milljarða evra lán til Úkraínu vegna óánægju hans með lokuðu olíuleiðsluna í síðustu viku. Hann hótar því að beita neitunarvaldi gegn öllum frekari lánveitingum þar til hún verður opnuð aftur. Þá hefur hann stöðvað olíuflutninga til Úkraínu og beitt neitunarvaldi á frekari refsiaðgerðir Evrópusambandsins gegn Rússlandi.
Ungverjaland Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Jarðefnaeldsneyti Hernaður Evrópusambandið Bandaríkin Donald Trump Kosningar í Ungverjalandi Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Endurskoða samning SÁÁ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Banna búrkur og níkab Erlent Fleiri fréttir Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Sjá meira