Er fangelsismálastofnun með dómsvald? Tómas Ingvason skrifar 21. mars 2026 16:00 Við trúum því almennt (svona flest hver) að einstaklingar sem eru sakaðir um eitthvað misjafnt, eigi að hljóta réttláta málsmeðferð þar sem þeir geti borið hendur fyrir höfuð sér, og andmælt ásökunum. Við trúum því flest hver að einstaklingar eigi að teljast saklausir uns sekt sé sönnuð. Allur gangur er á því hversu vel er staðið að málum innan íslenskra dómstóla, en þetta er þó hugmyndafræðin sem liggur að baki. En hvernig er þessu háttað í samfélaginu? Við sjáum iðulega að fyrirtæki reka einstaklinga sem eru ásakaðir um eitthvað misjafnt, jafnvel þó þeir séu sýknaðir af réttarkerfinu, og jafnvel þó mál séu aldrei kærð. Þarna er borið við að fyrirtæki ráði sér sjálf. Innan stjórnsýslu er gerð aukin krafa um réttláta málsmeðferð. En hvað með einstaklinga sem hafa hlotið dóma og eru komnir í úrræði, njóta þeir þessara grundvallarréttinda réttarríkisins, að vera taldir saklausir uns sekt sannast? Einstaklingur sem er í bata, er komin í úrræði og stefnir aftur út í lífið. Upp kemur ásökun vegna gremju í hans garð. Einstaklingurinn fær aldrei færi á að verja sig. Hann er ekki talinn saklaus uns sekt hans sé sönnuð, heldur er viðkomandi handtekinn án dóms og laga og fær ekki svarað fyrir sig. Einstaklingurinn er settur inná Litla-Hraun aftur eftir að vera kominn í opið úrræði (áfangaheimilið Vend). Einstaklingurinn er fundinn sekur án réttlátrar málsmeðferðar, honum refsað út frá ásökun en ekki neinum haldbærum gögnum. Hann sviptur von og komið fram við hann eins og sekur sé. Þessi einstaklingur bað í tvígang um hjálp inni á Litla-Hrauni, enda hrundi hann niður andlega eftir þetta inngrip. Honum var sagt að hann fengi enga hjálp fyrr en á mánudegi en það var of seint. Ungi maðurinn tók líf sítt inni á Litla-Hrauni a laugardagsnótt. Ungi maðurinn hafði verið sviptur allri von, refsað án þess að mál hans væri skoðað. Brotinn niður og sviptur grundvallarrétti í siðmenntuðu samfélagi, að vera talinn saklaus uns sekt sannast. Hver ber ábyrgð á þessum gjörningi? Að refsa manninum út frá einhliða ásökun? Að neita manninum heilbrigðisþjónustu? Þrátt fyrir að hann væri niðurbrotinn og bæði um aðstoð, sem allir eiga rétt á hvort sem það er á virkum degi eða um helgar. Hver ber ábyrgð á þessum mannréttindabrot af hálfu fangelsismálastofnunar? Enginn tekur ábyrgð. Ásökun, orð gegn orði, dugar hún til að refsa föngum í úrræði? Eru þeir réttminni en aðrir einstaklingar í samfélaginu? Njóta þeir ekki þess að vera álitnir saklausir uns sekt sanna. Höfundur er gegn stjórnsýsluofbeldi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun