„Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Agnar Már Másson skrifar 19. mars 2026 23:01 Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir „fifty-fifty“ líkur á því að umbrotatímabilið hafi lognast út af. Vísir Eldfjallafræðingur segir að eldgosahrinan á Reykjanesskaga sé líklega farin að lognast út af eftir fimm ára umbrotatímabil. Mögulega sé nú komið að kaflaskilum og hann segir að áratugir gætu verið í næsta gos.
Fimm ár og tólf eldgos eru liðin frá því að eldsumbrot hófust í Geldingadölum við Fagradalsfjall á Reykjanesi en eldgosið markaði upphafið að nýju gosskeiði á svæðinu eftir tæplega átta hundruð ára hlé. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur var til tals í myndveri í dag en þar sagði hann að ekki væri hægt að segja með vissu hvað gerðist næst. „En mér finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út hægt og rólega,“ sagði Þorvaldur. „Og ég er ekkert sannfærður um að við fáum fleiri gos á Sundhnúkareininni.“ Hann bendir á að nú taki lengri tíma fyrir kvikuhólfið undir Svartsengi að fyllast og því væri spennumyndunin talsvert hægari. „Umslgið utan um kvikugeymsluna hefur lengri tíma til að jafna sig.“ Hann segir „fifty-fifty“ líkur á því að þetta sé rétta sviðsmyndin. Fræðimenn hafa einnig bent á að endvirknin kynni að hreyfast á milli svæða. Þorvaldur segir að mynstrið á Reykjanesskaga sé þannig að þegar umbrotatímabil hefst þá sé skaginn virkur í hátt í fjögur hundruð ár. „Við fáum umbrot á ákveðnum gosreinum,“ útskýrir hann og nefnir að nokkur gos geti orðið á því tímabili. „Og svo lognast út af og það eru oft nokkrir áratugir á milli.“ Hann heldur áfram: „Vonandi fáum við smá pásu núna og við getum hvílt okkur og undirbúið okkur undir næstu átök sem eru þá vonandi ekki fyrr en eftir tvo, þrjá, fimm, fjóra áratugi.“ Hann segir að það megi hægt og rólega fara að huga að uppbyggingu í Grindavík á nýjan leik.
Eldgos og jarðhræringar Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Almannavarnir Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira