Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Valur Páll Eiríksson skrifar 14. mars 2026 10:00 David James sagði strax já þegar Hermann hringdi. Vísir/Lýður Valberg David James, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Englands, þjálfar markverði Vals þessa dagana. Hann sagði strax já þegar félagi hans Hermann Hreiðarsson hringdi og tók fjölskylduna með til landsins.
James þarf að kynna fyrir fáum en hann er fimmti leikjahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar og einnig mikill Íslandsvinur sem lék með ÍBV sumarið 2013 er Hermann Hreiðarsson þjálfaði liðið. Daninn Emil Larsen sem altént þjálfar markverði Vals er með kvennaliði félagsins í æfingaferð og því fékk James kallið frá Hermanni. „Hermann hringdi vegna þess að markmannsþjálfarinn er með kvennaliðinu erlendis í rúma viku og hann spurði hvort ég gæti hjálpað til. Alveg eins og þegar ég fór til hans í ÍBV, þá þurfti ekki mikið til þess að ég segði já. Ég elska að koma til Íslands,“ segir James. Leitar enn norðurljósa Hann nýtur þess ávallt vel að koma hingað til lands. „Ég hef komið hingað nokkrum sinnum. Ég kem leitandi að norðurljósum en ég á enn eftir að sjá þau,“ segir James. „Ég verð hérna í tíu daga og er að bíða eftir sumarveðrinu,“ segir James sem ætlar að njóta sín, samhliða vinnunni. „Þetta er forgangsatriðið,“ segir James og bendir á markverðina. „Ég nýt þess að vinna með þeim og get vonandi kennt þeim eitthvað.“ „Svo eru dóttir mín og sonur hennar að koma til Íslands í fyrsta sinn, og raunar fyrsta ferð dóttursonar míns erlendis, hann hlakkar til að sjá Norðurljósin og að njóta Reykjavíkur,“ segir James. Kalt sumar og kjúklinga-wingers James spilaði fyrir ÍBV sumarið 2013 og hvað minningar frá Íslandi varðar segir hann: „Það var kaldasta sumrið í 20 ár minnir mig. Og ég er enn að leita að trjám hérna. Svo skortir mig íslensku kunnáttu. Hún takmarkast við kjúklingawingers, það er nokkurn veginn allt sem ég kann. Ég nýt þess að vera hérna og vonandi get ég hjálpað þessum strákum að verða bestu markverðir deildarinnar.“ Við það má bæta að þeir Hermann og James sáust saman á Just Wingin' It, vængjastað í Garðabæ, í vikunni og hafa eflaust notið góðra kjúklingawingers. James mun þá fylgjast vel með Valsliðinu í sumar eftir samstarf vikunnar. „Alveg klárlega, 100 prósent.“ Viðtalið við James má sjá í heild í spilaranum að neðan. Klippa: David James ræðir markmenn Vals, norðurljósaleit og „kjúklingawingers“
Valur Besta deild karla Enski boltinn Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira