Fagráðið harmar brotthvarf Hildigunnar Lovísa Arnardóttir skrifar 10. mars 2026 18:32 Mikið hefur gengið á á sjúkrahúsinu síðustu misseri. Vísir/Viktor Freyr Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri harmar skyndilegt brotthvarf Hildigunnar Svavarsdóttur, fyrrverandi forstjóra spítalans, úr starfi. Hildigunnur sagði upp eftir að ráðherra greindi frá því að staða hennar yrði auglýst við lok fimm ára skipunartíma hennar.
Fagráðið sendi frá sér ályktun um brotthvarf Hildigunnar í dag. Fjallað er um ályktunina í Vikublaðinu. Þar kemur einnig fram að fagráðið telji að farsælast hefði verið ef Hildigunnur hefði setið áfram. Staða forstjóra spítalans var auglýst í lok síðasta mánaðar. Töluvert hefur verið fjallað um erfiða stöðu spítalans undanfarið í tengslum við uppsögn ferliverksamninga, myglu og lokun endurhæfingardeildar spítalans. „Starfsemi Sjúkrahússins hefur verið að ganga í gegnum viðkvæmt tímabil af ýmsum orsökum t.d. vegna kröfu ráðuneytis að segja upp ferliverkum lækna, myglu í húsnæði og aðstöðu margra deilda sem krefjast flutninga flókins búnaðar og starfsemi ásamt mikilli úrbótavinnu, áskorana tengdum nýjum kjarasamningum lækna, mönnunarvanda lækna, hjúkrunarfræðinga og fleiri heilbrigðisstétta og skorts á fjármögnun í takt við verkefni,“ segir í ályktun fagráðsins. Þau telja að eðlilegra hefði verið að halda stöðugleika í yfirstjórn við þessar aðstæður. „Fagráð SAk þakkar Hildigunni fyrir vel unnin störf og samstarf á undanförnum árum,“ segir að lokum í ályktuninni. Umsóknarfrestur um stöðu forstjóra spítalans er til 23. mars. Í auglýsingu kom fram að skipað yrði í stöðuna til fimm ára, frá 1. júní 2026. Sjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins og lögum samkvæmt varasjúkrahús Landspítalans. Að jafnaði eru tæplega 700 manns starfandi á SAk. Fram kom í frétt á vef Vísis við lok síðasta mánaðar að Torfi Fjalar Jónasson, hjartalæknir og eiginmaður Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, hefði lagt fram vantrauststillögu á fundi læknaráðsins í október en síðan dregið hana til baka. Torfi vísaði á bug ásökunum um að hafa átt í átökum eða árekstrum við Hildigunni. Tilefni fyrirspurnar fréttastofu til Torfa Fjalars um árekstra við Hildigunni var viðtal við Ingibjörgu Isaksen, þingflokksformann Framsóknarflokksins, í Bítinu á Bylgjunni 20. febrúar. Þar gaf Ingibjörg í skyn að Torfi hefði átt í einhverjum átökum eða árekstrum við Hildigunni áður en hún sagði svo af sér í kjölfar þess að tilkynnt hafði verið að staðan yrði auglýst.
Akureyri Heilbrigðismál Sjúkrahúsið á Akureyri Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira