Karlar - ekki burðast með þetta einir Þorri Snæbjörnsson skrifar 7. mars 2026 10:02 Það er flestum mikið áfall að greinast með krabbamein og algengt að fólk upplifi sig í lausu lofti. Margir hafa verið með einkenni í lengri eða styttri tíma og í rannsóknum hjá læknum. Óvissanum það sem tekur við er erfið og getur valdið kvíða en oft finnur fólk fyrir vissum létti þegar rannsóknarniðurstöður og meðferðaráætlun liggja fyrir. Margir glíma þó áfram við erfiðar hugsanir og tilfinningar á borð við kvíða, sorg og jafnvel reiði. Auk þess geta orðið breytingar á þreki og úthaldi, hlutverkum og samskiptum sem hafa áhrif á sjálfsmynd okkar og tilfinningu fyrir því að hafa stjórn á aðstæðum. Einnig geta samskipti við aðra í þessum breyttu aðstæðum valdið spennu eða vanlíðan. Þessara áhrifa gætir á meðan á meðferð stendur og þau geta varað í langan tíma eftir að meðferð lýkur. Við hjá Krabbameinsfélaginu höfum gert rannsóknir á upplifun fólks af því að greinast með krabbamein og niðurstöður þeirra sýna að svipað hlutfall karla og kvenna upplifa áhyggjur við greiningu, en karlar eru þó einungis um þriðjungur þeirra sem nýta sér stuðning frá félaginu. Þá benda niðurstöður einnig til að töluverður fjöldi karla upplifi þörf fyrir stuðning í ferlinu, en leiti ekki eftir honum. Þessu viljum við breyta, því við vitum að það hjálpar að leita í smiðju þeirra sem reynsluna hafa og við heyrum svo oft frá þeim körlum sem koma að þeir hefðu viljað að þeir hefðu komið fyrr. Ýmislegt sem þú getur gert Mörgum þykir hjálplegt að halda daglegri rútínu áfram, þótt hún geti breyst eftir greiningu eða í krabbameinsmeðferð. Hreyfing, næring og svefn eru áfram mjög mikilvægar undirstöður fyrir góða líðan. Margir dusta rykið af gömlum áhugamálum eða læra eitthvað nýtt, en sköpun getur hjálpað við að róa hugann og er oft eins og hálfgerð hugleiðsla. Hlátur og gleði létta líka á spennu og það er gott að hafa alltaf eitthvað framundan til að hlakka til, þótt það sé bara eitthvað lítið eins og góður kaffibolli. Stundum tökumst við á við erfiðleika með óhjálplegum leiðum eins og að einangra okkur, forðast aðstæður sem minna okkur á veikindin eða jafnvel með því að deyfa okkur. Það er mjög mikilvægt að sýna því sem við erum að upplifa mildi og þolinmæði og að muna að þetta eru ekki óalgengar tilfinningar og það er óþarfi að takast á við þetta einn. Það getur oft hjálpað meira en okkur grunar að tala við einhvern sem við treystum um tilfinningar okkar og líðan. Stundum er jafnvel betra að tala við einhvern ótengdan fagaðila, þótt það geti virst framandi tilhugsun. Enginn einn – dyr okkar standa ávallt opnar Öll erum við ólík og misjafnt hvaða leiðir henta til aðstoðar. Mikilvægast er að hver og einn finni út hvað virkar best fyrir sig. Þar erum við hjá Krabbameinsfélaginu tilbúin að rétta fram hjálparhönd. Við bjóðum öllum sem fá krabbamein og aðstandendum þeirra ókeypis stuðning, ráðgjöf og fræðslu. Við bjóðum meðal annars upp á: Einstaklings-, para- og fjölskylduviðtöl Fjarviðtöl og símaráðgjöf Margvísleg námskeið, fjarnámskeið og djúpslökun Hagnýtar upplýsingar um félagsleg úrræði og réttindi í veikindum Dvöl í íbúðum félagsins gegn vægu gjaldi fyrir þau sem sækja meðferð á Landspítala og hafa búsetu á landsbyggðinni Fræðslu um helstu tegundir krabbameina, einkenni og meðferð Við karla viljum við segja: Fyrsta skrefið getur reynst erfitt, en oft kemur mönnum á óvart hve mikið það hjálpar að þiggja aðstoðina og hve mikill léttir getur fylgt því. Nýtum þann stuðning sem okkur býðst, því það þarf enginn að ganga í gegnum þetta einn. Við erum til staðar fyrir þig. Höfundur er sálfræðingur og teymisstjóri hjá Krabbameinsfélaginu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar