Miskovic farinn frá Álftanesi: „Aðallega var það persónuleikinn“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. febrúar 2026 13:46 Hjalti Þór hreifst ekki af persónuleika Nikola Miskovic. Vísir/Hulda Margrét Álftanes á mikilvægan leik fyrir höndum í kvöld þegar liðið tekur á móti Val í 18. umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Álftnesingar hafa gert breytingar á leikmannahópnum frá því í síðasta leik.
Bæði lið er í harðri baráttu, en um sitt hvoran hlutinn. Valur er með sæti í úrslitakeppninni tryggt og berst fyrir því að enda í efri hlutanum með heimavallarrétt. Álftanes er hins vegar ekki öruggt með sæti í úrslitakeppninni og situr í 8. sætinu fyrir leik kvöldsins. „Vissulega þurfum við stig, við þurfum sigur“ sagði Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Álftaness, í samtali við Vísi en hann væntir þess að verkefnið verði strembið. „Valsmenn eru svakalega þéttir, með stráka sem kunna þetta allt saman og hafa spilað lengi saman. Við þurfum að ná að hreyfa þá svolítið, ráðast á veikleika þeirra og svo þurfum við að vera þéttir varnarlega, loka á það sem þeir eru að leita að.“ Persónuleiki sem passaði illa og meiðslin hjálpuðu ekki Serbneski framherjinn Nikola Miscovic er farinn frá Álftanesi eftir aðeins þrjá leiki fyrir félagið. „Hann bara fittaði ekki alveg inn í kúltúrinn, því miður. Fínasti leikmaður og svaka talent, en var ekki alveg að fitta inn kallinn. Mér fannst þetta bara ekki alveg vera að ganga,“ sagði Hjalti. „Hann átti fínan leik á móti Njarðvík en kemur hálfmeiddur og er laskaður á hnénu. Var lengi að koma sér í gang og það var vont, en aðallega var það persónuleikinn og annað sem passaði ekki inn hjá okkur“ bætti Hjalti við. Mun stemningin á heimavelli hjálpa? Álftanes kemur inn í þennan leik með tvö töp að baki á útivelli gegn Njarðvík og KR. En félagið ætlar að keyra upp stemninguna á heimavelli í kvöld, frítt verður inn í Kaldalónshöllina og búast má við margmenni í góðri stemningu. Hjalti segir margt jákvætt hægt að taka með sér úr síðustu töpum og vonar að sínir menn taki leikinn yfir línuna í kvöld. „Báðum leikjum erum við svolítið að tapa bara undir lokin. Við þurfum bara að vera þéttari, klára þessa leiki og stemningin hjálpar við það. Þetta hafa ekkert verið neitt slakir leikir hjá okkur, þó Njarðvíkurleikurinn hafi ekki verið sá fallegasti“ sagði Hjalti.
Bónus-deild karla UMF Álftanes Mest lesið „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira