Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 16. febrúar 2026 23:28 Eiríkur Bergmann telur að Lilja eigi erfitt starf fyrir höndum. Vísir/Anton Brink Prófessor í stjórnmálafræði telur enga byltingu í vændum innan Framsóknarflokksins í kjölfar þess að Lilja Alfreðsdóttir var kjörinn nýr formaður hans. Hann telur að starf hennar geti verið erfitt þar sem hún situr ekki á þingi. „
Lilja hefur verið lengi í Framsóknarflokknum, fjölskylda hennar er rótgróin innan flokksins þannig að það eru engar sérstakar byltingar sem við getum átt von á,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, í kvöldfréttum Sýnar. Lilja Alfreðsdóttir var í gær kjörin formaður Framsóknarflokksins, fyrst kvenna. Lilja kveðst ekki hafa áhuga á að færa flokkinn til hægri, líkt og hún telur klofningsflokkinn Miðflokkinn hafa gert. Framsókn væri með skýra stefnu á miðjunni. „Hún hefur verið aðeins hægra megin en núverandi forysta í efnahagsmálum. Sjálf segist hún vilja vera nær miðjunni þannig þetta eru ekki stórpólitísk tíðindi hvað varðar stefnu flokksins,“ segir Eiríkur. Erfitt starf fyrir höndum Hann telur starfið geta verið afar erfitt fyrir Lilju þar sem hún hlaut ekki kjör inn á þing í síðustu Alþingiskosningunum. Sjálf líkti hún sér við þjálfara á hliðarlínunni. „Það er erfitt fyrir utanaðkomandi sem ekki situr á þingi að taka við forystu í stjórnmálaflokki. Alveg sér í lagi þegar flokkurinn er utan ríkisstjórnar svo það er ekki hægt að setjast í ráðherrastól og komast þannig inn í þetta og líka þegar það er svona langt til kosninga. Það eru tvö og hálft ár í það minnsta í boðaðar kosningar og það er gríðarlega langur tími fyrir þetta,“ segir Eiríkur. Nokkur fordæmi séu þó fyrir stöðunni, líkt og þegar Jón Sigurðsson var kjörinn formaður árið 2006. Flokkurinn var á þeim tíma í ríkisstjórn og fékk Jón því embætti iðnaðarráðherra. „Sambærilegasta dæmið við þetta er nú líklega þegar Ólafur Ragnar er kjörinn formaður Alþýðubandalagsins árið 1987. Þá var hann varaþingmaður þannig að hann var utan þings og Alþýðubandalagið var ekki í ríkisstjórn en það var honum til happs að ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar sprakk í beinni útsendingu hérna á Stöð 2 á sínum tíma,“ segir Eiríkur. Tækifærismennska fólgin í breyttri stöðu flokks Á flokksþinginu var ákveðið að Framsókn tekur afdráttarlausa afstöðu gegn bókun 35 og aðild að Evrópusambandinu. Það þykir athugavert þar sem í síðustu tíð Framsóknar í ríkisstjórn var bókunin lögð fram. „Það er hægt að lesa það í þetta að Framsókn er nú í stjórnarandstöðu og var þá í ríkisstjórn og þurfti að umgangast ákveðin mál af annars konar ábyrgð en núna. Auðvitað er ákveðin tækifærismennska fólgin í því þegar staða flokks breytist, þannig það er það sem hægt er að lesa í það,“ segir hann. Hann segist þó ekki geta fullyrt að flokkurinn sé að reyna sækja fylgi frá Miðflokknum með yfirlýsingunni. Framsóknarflokkurinn á sér reyndar sögu um að vera Evrópusinnaðastur íslenskra stjórnmálaflokka í tíð Halldórs Ásgrímssonar en lengst af hefur hann verið andvígur aðild. Lilja hefur nú líka sagt að hún sé fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður þannig að hún er ekki andvíg því. Auðvitað kemur þetta ekkert sérstaklega á óvart.“
Framsóknarflokkurinn Bókun 35 Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Fleiri fréttir Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira