Hvetur Starmer til að segja af sér Freyja Þórisdóttir skrifar 9. febrúar 2026 17:51 Anas Sarwar, leiðtogi Verkamannaflokksins í Skotlandi, tjáði sig um störf Keir Starmer. epa Leiðtogi Verkamannaflokksins í Skotlandi kallar eftir breytingum á þingi og vill að forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, segi af sér. Þingmenn stíga fram og lýsa yfir stuðningi við forsætisráðherrann.
Anas Sarwar, leiðtogi Verkamannaflokksins í Skotlandi, segir of mörg mistök hafa átt sér stað undir stjórn forsætisráðherra og vill að hann segi af sér. Þetta kom fram á blaðamannafundi hans fyrr í dag. BBC greinir frá. Þrýstingur á Starmer hefur aukist síðustu daga en lægra settir þingmenn í Verkamannaflokki hans gagnrýna hvernig hann tók á máli Peters Mandelson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra Breta í Bandaríkjunum. Mandelson sagði sig úr flokknum í síðustu viku til að forðast að valda flokknum frekari vandræðum vegna tengsla hans við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein. Starmer hafði bein afskipti af skipun Mandelson sem sendiherra árið 2024 þrátt fyrir að vita af tengslum þeirra Epstein. Morgan McSweeney, starfsmannastjóri Starmer, sagði af sér í gær vegna málsins en hann tekur fulla ábyrgð á skipuninni. Hann lýsir því yfir að hafa á sínum tíma ráðlagt Starmer að skipa Mandelson sem sendiherra en segir að þeir Starmer hafi ekki áttað sig á umfangi samskipta Mandelson og Epstein. Sarwar segir þá Starmer alltaf hafa náð vel saman og að hann eigi hrós skilið fyrir störf sín í þágu almennings. Hins vegar hafi ríkisstjórnin, undir handleiðslu Starmer, ekki staðið sig sem skyldi og að vel heppnaðar aðgerðir hennar drukkni í öllum mistökunum. Ráðherrar styðja Starmer Fjöldi ráðherra í ríkisstjórn Starmers hefur stigið fram og lýst yfir stuðningi við hann. Meðal þeirra eru David Lammy aðstoðarforsætisráðherra og Bridget Phillipson menntamálaráðherra. Eins hefur Angela Rayner, fyrrverandi aðstoðarforsætisráðherra og húsnæðismálaráðherra, tjáð sig um málið á samfélagsmiðlinum X. „Ég hvet alla samstarfsmenn mína til að koma saman, muna gildi okkar og standa við þau,“ sagði Rayner. „Forsætisráðherrann nýtur fulls stuðnings míns í þeirri vegferð.“
Bretland Tengdar fréttir Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Morgan McSweeney hefur sagt af sér sem starfsmannastjóri Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands. Hann kveðst hafa spilað stórt hlutverk í aðdraganda skipan Peter Mandelson sem sendiherra Breta í Bandaríkjunum. 8. febrúar 2026 16:00 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira
Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Morgan McSweeney hefur sagt af sér sem starfsmannastjóri Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands. Hann kveðst hafa spilað stórt hlutverk í aðdraganda skipan Peter Mandelson sem sendiherra Breta í Bandaríkjunum. 8. febrúar 2026 16:00