Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Árni Sæberg skrifar 9. febrúar 2026 10:30 Frá Kjarnagötu á Akureyri. Vísir Þorsteinn Hermann Þorbjörnsson, sem var sakfelldur í Landsrétti fyrir að svipta sambýliskonu sína lífi á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl árið 2024, hefur fengið leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar til Hæstaréttar.
Í Landsrétti var hann sakfelldur fyrir manndráp en í Héraðsdómi Norðurlands eystra var hann ekki dæmdur fyrir manndráp heldur ofbeldi í nánu sambandi sem leiddi til dauða og aðeins dæmdur til tólf ára fangelsisvistar. Sá dómur var harðlega gagnrýndur. Í ákvörðun Hæstaréttar um málsotsbeiðni Þorsteins Hermanns segir að í dómi Landsréttar hafi einkum verið litið til framburðar tveggja réttarlækna og miðað við að atlaga Þorsteins Hermanns að konunni hefði verið ofsafengin og beinst að sérstaklega viðkvæmum svæðum líkama hennar. Honum hefði því ekki getað dulist að bani gæti hlotist af atlögunni. Þá hefði niðurstaða héraðsdóms um að Þorsteinn Hermann væri sakhæfur verið staðfest. Telur að vísa hefði ákærunni frá dómi Í málskotsbeiðninni hafi hann talið úrslit málsins hefðu verulegt almennt gildi og hafi vísað meðal annars til þess að óskýrleiki verknaðarlýsingar í ákæru hefði átt að leiða til frávísunar málsins frá dómi. Í öllu falli hefði ekki verið stætt að sakfella hann fyrir manndráp á grundvelli hennar. Málið varðaði auk þess sönnunargildi matsgerða dómkvaddra manna og annarra sérfræðilegra gagna sem og mikilvæga hagsmuni almennings með hliðsjón af sjónarmiðum um veikindi og þýðingu þeirra fyrir ákvörðun refsingar. Þá hafi hann talið dóm Landsréttar bersýnilega rangan að efni til, einkum hvað varðar mat á ásetningi hans og heimfærslu til refsiákvæða samkvæmt ákæru. Það varðaði hann miklu enda hefði fangelsisrefsing hans verið þyngd um fjögur ár milli dómstiga. Hefði verulega þýðingu Niðurstaða Hæstaréttar var að að virtum gögnum málsins yrði að telja að úrlausn þess kynni að hafa verulega almenna þýðingu í skilningi laga um meðferð sakamála. Þá væri jafnframt haft í huga að Þorsteinn Hermann hefði verið sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða í héraði en manndráp í Landsrétti. Beiðnin væri því samþykkt.
Manndráp í Naustahverfi á Akureyri Akureyri Dómsmál Heimilisofbeldi Kynbundið ofbeldi Tengdar fréttir Dómurinn sé vonbrigði og sendi röng skilaboð Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir dóm yfir manni í manndrápsmáli vera vonbrigði, og veltir fyrir sér hvort dómurinn hefði verið þyngri ef ekki væri um heimilisofbeldi að ræða. 12. desember 2024 22:02 Synir konunnar lýsa andláti hennar sem létti Fjöldi vitna í máli vegna andláts konu í Naustahverfi á Akureyri lýsti áralöngu grófu heimilisofbeldi af hálfu sambýlismanns konunnar. Synir fólksins sögðu báðir fyrir dómi að andlát móður þeirra væri léttir. Álit matsmanns var að maðurinn væri með heilabilun og refsing myndi ekki bera árangur en hann var samt sem áður talinn sakhæfur. 11. desember 2024 15:06 Tólf ára fangelsi fyrir manndráp á Akureyri Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið dæmdur í tólf ára fangelsi fyrir að verða sambýliskonu og barnsmóður sinni um fimmtugt að bana á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl. 9. desember 2024 15:27 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Sjá meira
Dómurinn sé vonbrigði og sendi röng skilaboð Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir dóm yfir manni í manndrápsmáli vera vonbrigði, og veltir fyrir sér hvort dómurinn hefði verið þyngri ef ekki væri um heimilisofbeldi að ræða. 12. desember 2024 22:02
Synir konunnar lýsa andláti hennar sem létti Fjöldi vitna í máli vegna andláts konu í Naustahverfi á Akureyri lýsti áralöngu grófu heimilisofbeldi af hálfu sambýlismanns konunnar. Synir fólksins sögðu báðir fyrir dómi að andlát móður þeirra væri léttir. Álit matsmanns var að maðurinn væri með heilabilun og refsing myndi ekki bera árangur en hann var samt sem áður talinn sakhæfur. 11. desember 2024 15:06
Tólf ára fangelsi fyrir manndráp á Akureyri Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið dæmdur í tólf ára fangelsi fyrir að verða sambýliskonu og barnsmóður sinni um fimmtugt að bana á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl. 9. desember 2024 15:27