Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2026 09:03 Annika Malacinski berst fyrir jafnrétti en hennar grein er sú eina þar sem bara karlar fá að keppa á Vetrarólympíuleikum. @annika.malacinski Norræn tvíkeppni skiptir Anniku Malacinski öllu máli. Hún keppir á heimsvísu en draumur hennar um að komast á Vetrarólympíuleikana er enn bara draumur. Ekki vegna þess að hún sé ekki nógu góð, heldur vegna þess að hún er kona.
Norræn tvíkeppni er síðasta ólympíugreinin þar sem konum er enn ekki heimilt að keppa. Í mörg ár hefur hún barist fyrir viðurkenningu fyrir sig og liðsfélaga sína. Nú þegar Vetrarólympíuleikarnir hefjast á Ítalíu er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að láta í sér heyra.Bandaríska norræna tvíkeppniskonan Annika Malacinski leiðir baráttuna fyrir jafnrétti kynjanna á Vetrarólympíuleikunum eftir að konum var meinuð þátttaka í greininni á komandi leikum í Mílanó og Cortina.Annika Malacinski man eftir augnablikinu þegar dyrunum að Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina var skellt í lás. View this post on Instagram A post shared by Guardian Sport (@guardian_sport) Í flugi frá München til Denver keypti hún sér nettengingu um borð til að taka þátt í fjarfundi með Alþjóðaólympíunefndinni, fullviss um að keppni í norrænni tvíkeppni yrði loksins opnuð fyrir kvenkyns íþróttamönnum.„Svo kom ákvörðunin: „Nei.“ Engar skýringar, engar umræður. Bara „nei“ og svo fóru þau yfir í næsta mál,“ sagði hún í samtali við The Associated Press frá æfingastöð sinni í Noregi. „Ég grét stanslaust í átta klukkutíma í því flugi. Þegar ég lenti í Denver voru augun á mér bólgin og lokuð. Mér fannst heimurinn minn hafa hrunið.“Þetta var í júní 2022. Og þrátt fyrir áframhaldandi baráttu undir forystu Malacinski, 24 ára íþróttakonu frá Colorado, er íþróttagrein hennar sú síðasta sem útilokar konur – jafnvel þótt leikarnir í Mílanó og Cortina státi af hæsta þátttökuhlutfalli kvenna í sögu Vetrarólympíuleikanna, eða 47%.Malacinski er oft meðal tíu efstu á úrvalskeppnum í íþróttinni sem sameinar skíðastökk og skíðagöngu og krefst strangra æfinga allt árið um kring. Yngri bróðir hennar, Niklas, mun keppa fyrir Bandaríkin í karlaflokki og hún ætlar að ferðast til Norður-Ítalíu til að hvetja hann áfram. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=TJlgQh7aVqY">watch on YouTube</a> „Þetta er blendið. Ég veit hversu mikið hann leggur á sig og hann á það svo sannarlega skilið,“ sagði Malacinski. „Ég stunda sömu íþrótt og hann. Ég stekk af sömu skíðastökkpöllunum og skíða sömu brautirnar. Eini munurinn er að ég er kona.“Karlar hafa keppt í norrænni tvíkeppni frá fyrstu Vetrarólympíuleikunum fyrir meira en öld síðan, í Chamonix í Frakklandi árið 1924.Nú er hætta á að íþróttin verði tekin af dagskrá á næstu Vetrarólympíuleikum árið 2030. Alþjóðaólympíunefndin segir að norræn tvíkeppni hafi átt erfitt með að laða að sér þátttöku frá nægilega mörgum löndum og hafi takmarkað sjónvarpsáhorf.Konum var alfarið meinuð þátttaka á fyrstu nútímaólympíuleikunum árið 1896. Þegar þeim var leyft að keppa í París fjórum árum síðar var þátttakan takmörkuð við örfáar íþróttir, þar á meðal tennis, bogfimi og krokkett.Frjálsar íþróttir opnuðust konum ekki fyrr en árið 1928, á leikunum í Amsterdam – en takmarkanir voru settar vegna hugmynda um veikleika kvenna. Þrátt fyrir að 800 metra hlaup hafi upphaflega verið með var það síðar tekið af dagskrá í meira en þrjá áratugi.Fyrsta ólympíumaratonhlaup kvenna fór ekki fram fyrr en árið 1984 í Los Angeles – 88 árum eftir að hlaupið, sem er innblásið af forngrískri orrustu, var fyrst haldið.Næstum allur munur hefur síðan verið afnuminn, þótt nokkur mismunur sé enn til staðar. Á Sumarólympíuleikunum keppa konur í sjöþraut en karlar í tugþraut.Á Vetrarólympíuleikunum komu framfarirnar enn síðar. Skíðastökk var bannað konum allt til Ólympíuleikanna í Vancouver 2010 og var kynnt til sögunnar fjórum árum síðar í Sotsjí.Endurskoðun á vegalengdum í skíðagöngu er nýjasta og umfangsmesta breytingin. Í Mílanó og Cortina munu karlar og konur keppa í sömu vegalengdum í öllum greinum í fyrsta sinn í sögu Ólympíuleikanna.Áður var lengsta keppnisgrein kvenna 30 kílómetrar en 50 kílómetrar hjá körlum. Bæði kynin munu nú keppa í 50 kílómetra keppni með hópræsingu – líkt og á heimsmeistaramótinu í norrænum greinum í fyrra.Malacinski segist munu halda baráttu sinni fyrir þátttöku áfram, nú með áherslu á Vetrarólympíuleikana 2030 í frönsku Ölpunum.„Ég er mjög þrautseig,“ sagði hún. „Ef ég einset mér eitthvað veit ég að ég get það.“„Þetta hellir bara olíu á eldinn fyrir mig,“ sagði hún. „Við eigum skilið að vera þarna og ég mun berjast til 2030 því það er okkar rétti staður.“
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Körfubolti Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Rúnar Ingi um bannið hans Veigars Páls: „Ég er bara niðurbrotinn sem þjálfarinn hans“ „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Matthías hættur hjá Val Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Ömurleg menning hjá Man. Utd Sjá meira