Viðskipti innlent

Ráða Önnu Rut til að skapa rými fyrir Ár­mann

Árni Sæberg skrifar
Anna Rut Ágústsdóttir er nýr aðstoðarforstjóri Kviku. Forstjórinn, Ármann Þorvaldsson, mun einbeita sér að stefnumótandi verkefnum eftir ráðningu hennar.
Anna Rut Ágústsdóttir er nýr aðstoðarforstjóri Kviku. Forstjórinn, Ármann Þorvaldsson, mun einbeita sér að stefnumótandi verkefnum eftir ráðningu hennar. Kvika banki

Kvika banki hefur ráðið Önnu Rut Ágústsdóttur í starf aðstoðarforstjóra bankans. Anna Rut mun sinna starfinu samhliða hlutverki sínu sem framkvæmdastjóri rekstrar- og þróunarsviðs bankans og þannig styðja við áframhaldandi stjórnun og framkvæmd stefnumarkandi verkefna bankans.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Anna Rut hafi starfað innan Kviku samstæðunnar frá stofnun bankans árið 2015 og hjá forverum hans frá árinu 2007. Hún búi yfir víðtækri reynslu af starfsemi bankans og hafi sinnt fjölbreyttum störfum innan samstæðunnar.

Komið víða við innan bankans 

Áður en hún tók við starfi framkvæmdastjóra rekstrar- og þróunarsviðs árið 2022 hafi hún verið forstöðumaður fjármála og rekstrar hjá Kviku eignastýringu. Þar áður hafi hún gengt ýmsum lykilhlutverkum, meðal annars sem forstöðumaður á skrifstofu forstjóra og forstöðumaður viðskiptatengsla hjá Kviku auk þess sem hún hafi um árabil starfað á sviði áhættustýringar og eignaumsýslu. 

Anna Rut sé með BSc gráðu í viðskiptafræði og MCF gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík og hafi lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Ármann einbeitir sér að samrunaviðræðum

„Ráðning Önnu Rutar er liður í því að styrkja skipulag bankans og tryggja samfellu, skýra verkaskiptingu og öfluga framkvæmd á mikilvægum tímamótum í starfsemi Kviku banka. Með ráðningunni skapast aukið svigrúm fyrir Ármann Þorvaldsson, forstjóra Kviku, til að einbeita sér að stefnumótandi verkefnum, þar á meðal samrunaviðræðum við Arion banka, en forviðræður við Samkeppniseftirlitið standa enn yfir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×