Þórir: Það eru bara allir að berjast Árni Jóhannsson skrifar 8. janúar 2026 21:25 Þórir Guðmundur á fleygiferð. Vísir/Diego KR vann góðan sigur í 13. umferð Bónus deildar karla fyrr í kvöld. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var virkilega góður og leiddi sína menn til sigurs. Hann horfir bjartsýnn fram á veginn og er þakklátur fyrir sigurinn.
Þórir var spurður út í byrjun sinna manna en það leit út fyrir að Ármann væri efsta liðið en ekki neðsta í byrjun leiks og í raun og veru allan fyrri hálfleikinn. „Þetta var ekki okkar besta frammistaða. Við komum mjög flatir út og þeir bara gerðu það sem þeir vildu í fyrsta leikhluta. Skoruðu einhver 38 stig á okkur og það var ekki nógu gott. Þeir fóru með verðskuldaða forystu inn í hálfleik og við þurftum aðeins að breyta til í varnarleiknum og sem betur fer stigum við upp og gerðum það sem þurfti. Ég er bara sáttur við að hafa unnið leikinn.“ Segir þessi leikur Þóri eitthvað um KR liðið? „Segir manni bara helling um þessa deild. Ef maður mætir ekki klár þá er manni refsað, alveg sama hvaða lið maður er að spila við. Ármann mætti bara mikið klárari en við. Við svöruðum, komum til baka, sýndum karakter og það er gott. Jákvætt að við höfum unnið. Það er mikið prógramm framundan og gott að hafa unnið þennan eftir grátlegt tap í síðustu umferð.“ KR er á landamærum úrslitakeppninnar þessa stundina og var Þórir spurður út í það hvernig hann sæi tímabilið hjá KR þróast. „Það er kannski of snemmt að tala um lokin á deildarkeppninni núna en við sjáum bara úrslitakeppnina. Það eru bara allir að berjast, það er pakki fyrir ofan okkur og pakki þar sem við erum og við ætlum að koma okkur í pakkann fyrir ofan okkur. Við ætlum í úrslitakeppnina en það er líka bikarleikur á mánudaginn og fullt af fjöri framundan.“ Þórir var stigahæstur KR-inga með 28 stig. Hann leiddi sína menn áfram, sérstaklega í seinni hálfleik og var spurður hvort hann hafi breytt einhverju í sínum leik. „Ég varð áræðnari, ákvað að keyra meira á körfuna. Þeir voru svolítið að gefa það. Ég var samt með of mikið af töpuðum boltum og fullt sem við getum lagað eftir þennan leik. Tökum bara sigurinn og höldum áfram.“
KR Bónus-deild karla Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Fleiri fréttir Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Sjá meira